REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 406 3. nóvember 1978,
um fasteignaskráningu og fasteignamat.
1. gr.
6. gr. reglugerðarinnar orðist
svo:
1. Mati
skal haga þannig, að tilteknir þættir fasteignar séu metnir til grunnverðs, en
síðan skal meta gangverð eignar í heild.
2. Hús og önnur mannvirki
skulu metin ásamt fylgifé sínu. Til fylgifjár teljast munir sem tilheyra
mannvirki samkvæmt þeirri notkun sem það er ætlað til og almennt er gengið út
frá að fylgi mannvirki of því tagi sem um er að ræða. Til fylgifjár teljast þó
ekki, þótt skeyttar séu við fasteign, vélar eða önnur tæki til atvinnurekstrar
og heldur ekki heimilisvélar að frátöldum eldavélum.
3. Mannvirki í byggingu
skal að jafnaði meta einu sinni á ári miðað við það ásigkomulag sem þau eru þá
í. Mannvirki eða einstaka hluti þeirra skal taka í fasteignamat þegar þeir
teljast fokheldir eða hafa verið teknir í notkun.
4. Hús og önnur slík
mannvirki skulu teljast fokheld þegar þak hefur verið klætt vatnsverju og
glugga- og dyraopum verið gustlokað.
5. Sveitarstjórn er skylt að láta
Fasteignamati ríkisins í té upplýsingar um fyrirhugaða mannvirkjagerð í
sveitarfélaginu strax að lokinni ákvarðanatöku þar um. Fasteignamat ríkisins
kveður nánar á um form þessarar upplýsingagjafar sbr. 9. gr. laga nr. 94/1976.
6. Mannvirki, sem horfa
fyrst og fremst til aukinna nota og arðs of landi, svo sem vegir, brýr og
girðingar, eða horfa almennt til bættrar búskaparaðstöðu, eins og vatnsleiðslur
og raflínur til bæja, skulu eigi metin sérstaklega, en við mat á landi skal
tekið tillit til aukins verðmætis sem frá mannvirkjunum stafar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
lögum nr. 94 20. maí 1976, um skráningu og mat fasteigna, til að öðlast gildi
þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Fjármálaráðuneytið, 20. febrúar 1986.
Þorsteinn Pálsson.
Björn Hafsteinsson.