Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

722/2008

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1329/2006.

1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10 ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2007, frá 27. apríl 2007, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
    Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1329/2006 frá 8. september 2006 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkanir alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkanir) nr. 8 og 9.

2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1329/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 46/2008, 18. júlí 2008, bls. 173.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2007 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 38/2007, 9. ágúst 2007, bls. 52.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 18. júlí 2008.

F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Þórður Reynisson.

B_nr_722_2008.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt