Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

722/2001
felld brott með rg. nr. 8/2009

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um skoðun ökutækja, nr. 378 29. júní 1998.

1. gr.
Við 27. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Dómsmálaráðuneytið getur heimilað skoðunarstofu að skoða ökutæki sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd á skoðunarstofu II, endurskoðunarverkstæði eða öðru verkstæði þótt hentug gryfja/lyfta, hristari eða hjólþeytir séu ekki til staðar. Ákvæði 1. mgr. um fjarlægðir gilda. Skal þá tryggt að hemlaprófari fyrir bifreiðir og eftirvagna, óháð leyfðri heildarþyngd, verði notaður við skoðunina. Tryggja skal að öll atriði verði skoðuð samkvæmt skoðunarhandbók þrátt fyrir að gryfja/lyfta, hristari og hjólþeytir séu ekki til staðar.


2. gr.
Í stað 1. málsl. 2. gr. í viðauka II komi: Í hverju kjördæmi eins og þau voru 1998 skal vera a.m.k. ein skoðunarstofa I. Þó skal litið á höfuðborgarsvæðið (Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi) sem eitt kjördæmi.


3. gr.
Í stað „30. september“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við viðauka II, sbr. reglugerðir nr. 779 23. desember 1998 og nr. 240 12. mars 2001, komi: 31. desember.


4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 60. og 67. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr. lög nr. 44 7. maí 1993.

Ákvæði 1. og 2. gr. öðlast gildi 1. janúar 2002. Ákvæði 3. gr. öðlast þegar gildi.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 27. september 2001.

Sólveig Pétursdóttir.
Björn Friðfinnsson.

    nr 722 2001.doc
Stofnreglugerð:
378/1998 - Reglugerð um skoðun ökutækja.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt