Sjávarútvegsráðuneyti

716/2000

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Breiðdalsgrunni. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Breiðdalsgrunni.

 

1. gr.

Frá og með 11. október 2000 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á svæði á Breiðdalsgrunni, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

 

1.  64°18'00 N - 13°05'00 V

2.  64°13'00 N - 13°21'00 V

3.  64°15'00 N - 13°36'00 V

4.  64°24'00 N - 13°45'00 V

5.  64°25'00 N - 13°05'00 V

 

 

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 6. október 2000.

 

F. h. r.

Þorsteinn Geirsson.
 
 

Jón B. Jónsson.

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica