|
|
708/2008
REGLUGERÐ
um þvotta- og hreinsiefni.
1. gr.
Hlutverk Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds sbr. 5., 9. og 10. gr. og II. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni.
2. gr.
Merkingar. Merkingar þvotta- og hreinsiefna skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku.
3. gr.
Eftirlit. Um eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar fer samkvæmt 9. og 10. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur.
4. gr.
Viðurlög. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur.
5. gr.
Gildistaka tiltekinna gerða Evrópubandalagsins. Eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
| a) | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 144/2005, þann 2. desember 2005. Reglugerðin er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari ásamt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006, sbr. b) lið. |
| b) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006 varðandi breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2007, þann 27. apríl 2007. Reglugerðin er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari ásamt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 648/2004, sbr. a) lið. |
6. gr.
Gildistaka. Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 521/1994, um þvotta- og hreingerningaefni.
Umhverfisráðuneytinu, 30. júní 2008.
Þórunn Sveinbjarnardóttir. Magnús Jóhannesson.

Breytingar: 247/2013 - Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 708/2008 um þvotta- og hreinsiefni. 833/2010 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 708/2008 um þvotta- og hreinsiefni.
|