REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um notkun erlendra ökutækja,
nr. 267 1. júlí 1993.
1. gr.
Í stað 3. málsl. 1. mgr. 2. gr.
komi: Ökutækið skal og búið
a. þjóðernismerki með
þjóðernisbókstaf/stöfum að aftan í samræmi við ákvæði 20. gr. og viðauka 4 við
Genfarsamninginn um umferð á vegum frá 19. september 1949 eða 37. gr. og
viðauka 3 við Vínarsamninginn um umferð á vegum frá 8. nóvember 1968, og/eða
b. sömu þjóðernisbókstöfum á
ökutæki frá ríki Evrópusambandsins sem komið er fyrir á vinstri hlið
skráningarmerkisins í samræmi við ákvæði reglugerðar ráðsins (EB) nr. 2411/98.
2. gr.
Á eftir 1. mgr. 2. gr. bætist ný
málsgrein, svo hljóðandi:
Ákvæði reglugerðar ráðsins (EB)
nr. 2411/98 um viðurkenningu á þjóðernismerki skráningarlands bifreiða og
bifhjóla og eftirvagna þeirra í umferð innan bandalagsins skulu gilda hér á
landi með þeirri aðlögun sem leiðir af XIII. viðauka við EES samninginn, bókun
I við samninginn og samningnum að öðru leyti.
3. gr.
6. gr., sbr. reglugerðir nr.
96/1996 og nr. 313/1999, orðist svo:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
66. gr. og 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, svo og með
hliðsjón af 8., 9. og 10. tölul. IX. viðauka við EES samninginn (tilskipun
72/166/EBE með breytingum samkvæmt tilskipunum 72/430/EBE, 84/5/EBE og
90/232/EBE og ákvörðunum 91/323/EBE, 93/43/EBE, 97/828/EB og 99/103/EB) og 24.
b tölul. XIII. viðauka við samninginn (reglugerð 98/2411/EB).
4. gr.
Reglugerð þessi sem sett er
samkvæmt 66. gr. og 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, öðlast
þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. október 1999.
Sólveig Pétursdóttir.
Ólafur W.
Stefánsson.
Word útgáfa af reglugerð