|
|
699/2003
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 646/1995 um jöfnun eigna á móti
vátryggingaskuld vátryggingafélaga, með síðari breytingum.
1. gr. Við 1. tölul. 1. mgr. 3. gr. bætist:
Verðbréf útgefin af fjölþjóða þróunarbönkum, eins og þeir eru skilgreindir í 2. gr. reglugerðar nr. 530/2003 um eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja, sem eitt eða fleiri aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eru aðilar að.
2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 98. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi með síðari breytingum, sbr. og 3. mgr. 34. gr. sömu laga.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu, 9. september 2003.
Valgerður Sverrisdóttir. Þóra M. Hjaltested.
Stofnreglugerð: 646/1995 - Reglugerð um jöfnun eigna á móti vátryggingaskuld vátryggingafélaga.
|