Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

698/2008

REGLUGERÐ
um takmörkun á notkun tiltekinna epoxýafleiðna í efni og hluti
sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.

1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1895/2005 frá 18. nóvember 2005 sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2006 frá 28. apríl 2006, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.


2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1895/2005 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.


3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákveðið í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.


4. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995.


5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 14. gr. og 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 751/2002 um tilteknar epoxýafleiður til notkunar í efni og hluti sem er ætlað að snerta matvæli.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. júlí 2008.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.
B_nr_698_2008_an_fylgiskjals.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt