Sjávarútvegsráðuneyti

694/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 809, 20. nóvember 2002, um friðunarsvæði við Ísland. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

2. mgr. 1. tl. 1. gr. orðist svo:

Þrátt fyrir ofangreint bann er þó heimilt á tímabilinu frá og með 1. febrúar til og með 15. apríl að stunda veiðar á svæði á „Mehlsack“ sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 26´77 N – 25° 23´25 V

2. 63° 06´50 N – 24° 44´30 V

3. 63° 03´36 N – 24° 55´51 V

4. 63° 19´00 N – 25° 32´00 V

5. 63° 21´95 N – 25° 39´65 V



2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 22. júlí 2005 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. júlí 2005.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica