Fjármálaráðuneyti

691/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 470/1991, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til sendimanna erlendra ríkja, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Endurgreiðsla virðisaukaskatts samkvæmt reglugerð þessari er háð því að heimaland viðkomandi sendiráðs, eða sendierindreka, veiti gagnkvæman endurgreiðslurétt til íslenskra sendiráða eða sendierindreka.

2. gr.

Í stað fjárhæðarinnar ,,10.000" í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur fjárhæðin: 7.000.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 27. júní 2008.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Guðmundur Jóhann Árnason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica