Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

691/2000

REGLUGERÐ
um (1.) br. á reglugerð nr. 808/1998 um tekjutryggingu.

1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Tekjutrygging elli- og sjómannalífeyrisþega.
Ef tekjur einhleyps ellilífeyrisþega eru ekki hærri en 268.560 kr. á ári skal greiða tekjutryggingu á lífeyri hans að upphæð 365.352 kr. á ári. Hafi bótaþegi hins vegar aðrar tekjur umfram 268.560 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.

Nú nýtur einungis annað hjóna ellilífeyris, en hitt ekki, og eru sameiginlegar tekjur þeirra hjóna ekki hærri en 1.074.240 kr. á ári og skal þá greiða tekjutryggingu til viðbótar lífeyri þess að upphæð 365.352 kr. á ári. Hafi hjón hins vegar tekjur umfram 1.074.240 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.

Hjónum sem bæði njóta ellilífeyris, en hafa sameiginlega tekjur sem fara ekki fram úr 537.120 kr. á ári, skal greiða tekjutryggingu sem nemur tvöfaldri tekjutryggingu einhleypings. Hafi hjón hins vegar tekjur umfram 537.120 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.


2. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Tekjutrygging örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
Ef tekjur einhleyps örorkulífeyrisþega eru ekki hærri en 402.840 kr. á ári skal greiða tekjutryggingu til viðbótar lífeyri hans að upphæð 375.756 kr. á ári. Hafi bótaþegi hins vegar aðrar tekjur umfram 402.840 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.

Nú nýtur aðeins annað hjóna örorkulífeyris, en hitt ekki, og eru sameiginlegar tekjur þeirra hjóna ekki hærri en 1.611.360 kr. á ári og skal þá greiða tekjutryggingu til viðbótar lífeyri þess að upphæð 375.756 kr. á ári. Hafi hjón hins vegar tekjur umfram 1.611.360 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.

Hjónum sem bæði njóta örorkulífeyris, en hafa sameiginlegar tekjur sem eru ekki hærri en 805.680 kr. á ári, skal greiða tekjutryggingu sem nemur tvöfaldri tekjutryggingu einhleypings. Hafi hjón hins vegar tekjur umfram 805.680 kr. á ári skal skerða tekjutrygginguna um 45% þeirra tekna sem umfram eru.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 66. gr., sbr. 17. og 18. gr. laga nr. 117/1993 með síðari breytingum og öðlast gildi 1. október 2000. Fjárhæðir í reglugerð þessari breytast í samræmi við reglur 18. og 65. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993 og reglugerða sem settar eru með stoð í þeim.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. september 2000.

Ingibjörg Pálmadóttir.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.

    nr 691 2000.doc
Stofnreglugerð:
808/1998 - Reglugerð um tekjutryggingu samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt