Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

681/2009

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 503/2005 um merkingu matvæla.

1. gr.
Við 8. tl. 6. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir málsliðir svohljóðandi:

Þær fersku matjurtir, sem fram koma í viðauka þessarar reglugerðar, skulu vera merktar á umbúðum með upplýsingum um upprunaland. Sama gildir um vörutegundir úr ferskum matjurtum þar sem matjurtum er blandað saman og/eða þær skornar niður. Þegar um er að ræða vörutegund þar sem ferskar matjurtir hafa uppruna í fleiri en einu landi skal tilgreina nafn hverrar matjurtar og upprunaland hennar á umbúðum. Ekki er þörf á að merkja umbúðir ferskra matjurta með upplýsingum um upprunaland þegar framleiðandi dreifir framleiðslu sinni milliliðalaust til neytanda.


2. gr.
Við 1. mgr. 28. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður svohljóðandi:

Þegar ferskum matjurtum er dreift án umbúða eða pakkað af seljanda á sölustað skal seljandi vörunnar veita kaupanda upplýsingar um upprunaland vörunnar með sýnilegum hætti, þar sem varan liggur frammi.


3. gr.
Viðauki þessarar reglugerðar verður 7. viðauki reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla.


4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 14. gr. sbr. 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2009.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. júlí 2009.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.


VIÐAUKI
Matjurtir sem skylt er að merkja með upplýsingum um upprunaland.

Eftirfarandi ferskar matjurtir skulu vera merktar á umbúðum með upplýsingum um upprunaland sbr. 8. tl. 6. gr. reglugerðarinnar. Þegar matjurtum er dreift án umbúða eða pakkað á sölustað skal seljandi vörunnar veita kaupanda upplýsingar um upprunaland vörunnar með sýnilegum hætti, þar sem varan liggur frammi, sbr. 28. gr. reglugerðarinnar.

Kartöflur.


Tómatar.
Laukur, skalottlaukur, hvítlaukur, blaðlaukur (púrra), vorlaukur, graslaukur og aðrar skyldar matjurtir.
Blómkál, grænkál, hnúðkál, hvítkál, kínakál, rauðkál, rósakál, spergilkál (broccoli), kínaspergilkál (brassica oleracea var alboglabra), salatkál (pak choi, brassica rapa var chinensis), mibuna og mizuna (brassica rapa var nipposinica), sinnepskál (mustarður), fóðurmergskál og aðrar skyldar matjurtir.
Salat, höfuðsalat, batavíasalat, íssalat (icebergsalat), lausblaða íssalat (frillice), blaðsalat (rapid, lollo rosso, eikarblaðsalat), klettasalat, vorsalat (lambasalat), hrokkinblaðssalat, endívusalat, síkoría (cichorium spp.).
Gulrófur, gulrætur, hreðkur, næpur, rauðrófur, sellerírót, hafursrót, radísur og aðrar rætur ætlaðar til matar.
Gúrkur, reitagúrkur.
Belgávextir, með eða án hýðis.
Spergill.
Eggaldinjurtir.
Selja, (stilksellerí) önnur en seljurót.
Sveppir og tröfflur.
Aldin Capsicumættarinnar eða Pimentaættarinnar: Paprikur (grænar og litaðar) og eldpipar, og aðrar tegundir af ættkvíslunum ætlaðar til matar.
Spínat, Nýja-Sjálandsspínat, hrímblaðka (garðaspínat), blaðbeðja, garðsúra, skrautsúra, silfurblaðka, spínatblaðka, rauðbeða.
Steinselja, dill, garðablóðberg, basilika, órigan, íssópur, majoram, rósmarín, kóríander, fennill, mynta, salvía.
Sykurmaís.
Kúrbítur (courgettes).
Ólífur.
Jarðartískokka (ætiþistill).
Jarðarber.
Rabarbari.

Viðauki þessi gildir einnig um ferskar matjurtir, þar sem þessum tegundum er blandað saman og/eða þær skornar niður.



B_nr_681_2009.doc

Stofnreglugerð:
503/2005 - Reglugerð um merkingu matvæla.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt