REGLUGERÐ
um gjaldeyrismál.
I. KAFLI
Orðskýringar.
1 . gr.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér
segir:
Innlendur aðili merkir:
1. sérhvern mann sem hefur fasta búsetu hér á landi samkvæmt
lögum um lögheimili, án tillits til ríkisfangs; sama á við um íslenska
ríkisborgara og skyldulið hans sem hefur búsetu erlendis en gegnir störfum þar
á vegum íslenska ríkisins við sendiráð, fastanefnd eða ræðismannsskrifstofu og
tekur laun úr ríkissjóði eða er starfsmaður alþjóðastofnunar sem Ísland er
aðili að:
2. sérhvern lögaðila sem skráður er til heimilis hér á
landi á lögmætan hátt, telur heimili sitt hér á landi samkvæmt samþykktum sínum
eða ef raunveruleg framkvæmdastjórn hans er hér á landi; hérlend útibú
lögaðila, sem heimili eiga erlendis, teljast til innlendra aðila.
Erlendur aðili merkir alla
aðra aðila en innlenda. Til erlendra aðila teljast m.a. starfsmenn erlendra
sendiráða hér á landi sem eru erlendir ríkisborgarar og varnarlið á vegum Atlantshafsbandalagsins
hér á landi. Sama gildir um skyldulið þessara aðila sem dvelst hér á landi og
hefur ekki íslenskt ríkisfang.
Innlendur gjaldeyrir merkir
íslenska peningaseðla, slegna peninga, tékka og aðrar ávísanir, víxla og önnur
greiðslufyrirmæli, sem hljóða upp á greiðslu í íslenskum krónum, minnispeninga,
gull, silfur og aðra dýra málma ef þeir eru notaðir sem gjaldmiðill í
viðskiptum hér á landi.
Erlendur gjaldeyrir merkir
erlenda peningaseðla, slegna peninga, tékka og aðrar ávísanir, víxla og önnur
greiðslufyrirmæli, sem hljóða upp á greiðslu í erlendri mynt, minnispeninga,
gull, silfur og aðra dýra málma ef þeir eru notaðir sem gjaldmiðill í
viðskiptum erlendis.
Gjaldeyrisviðskipti merkja
það að skipta innlendum gjaldeyri fyrir erlendan, erlendum gjaldeyri fyrir
innlendan eða einum erlendum gjaldeyri fyrir annan eða reikningsviðskipti sem
eru ígildi þess að erlendur gjaldeyrir sé látinn af hendi eða móttekinn, þ.m.t.
innborgun á reikning í íslenskum krónum í eigu erlends aðila, hvort sem innstæða
er endanlega flutt úr landi eða fjármunir nýttir hérlendis.
Milliganga um
gjaldeyrisviðskipti og verslun með erlendan gjaldeyri merkir í reglugerð
þessari að:
1. stunda gjaldeyrisviðskipti í atvinnuskyni fyrir eigin
reikning eða gegn endurgjaldi,
2. koma á gjaldeyrisviðskiptum milli aðila gegn
endurgjaldi.
Fjármagnshreyfingar merkja
yfirfærslu eða flutning á fjármunum milli landa sem tengjast:
1. beinum fjárfestingum, þ.m.t. ráðstöfun söluandvirðis,
2. útgáfu, kaupum eða sölu á hlutabréfum, skuldabréfum,
víxlum, hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og hvers konar öðrum langtíma- eða
skammtímaverðbréfum, þ.m.t. kröfukaupum,
3. lánveitingum, lántökum og greiðslu eða móttöku afborgana
af lánum,
4. veitingu ábyrgða og hvers konar greiðslutrygginga,
5. opnun bankareikninga og notkun þeirra,
6. afleiddum viðskiptum (á ensku: derivatives) hvers konar,
þ.m.t. framvirkum viðskiptum (á ensku: forwards, futures), viðskiptum með
valrétt (valkvæðum viðskiptum, á ensku: option), gjaldmiðla- og vaxtaskiptum (á
ensku: swap) og hvers konar samblandi valkvæðra viðskipta og/eða gjaldmiðla- og
vaxtaskipta (t.d. á ensku: swaption),
7. yfirfærslu á fjármunum einstaklinga, fjölskyldna og
lögaðila.
Skammtímahreyfingar fjármagns merkja fjármagnshreyfingar milli landa sem tengjast:
1. útgáfu á og viðskiptum með skuldabréf og víxla með
lokagjalddaga allt að einu ári frá útgáfudegi og önnur slík skammtímaverðbréf,
2. útgáfu á og viðskiptum með hlutdeildarskírteini
verðbréfasjóða sem fjárfesta í skammtímaverðbréfum,
3. lánveitingum og lántökum til skemmri tíma en eins árs,
4. innleggi á og úttekt af reikningum í innlánsstofnunum og
hliðstæðum gjaldeyrisviðskiptum.
Jafnframt teljast til skammtímahreyfinga fjármagns inn- og
útflutningur skammtímaverðbréfa og önnur hliðstæð viðskipti.
Bein fjárfesting merkir
fjárframlag eða annað framlag til eigin fjár atvinnufyrirtækis eða kaup á
eignarhlut til að öðlast virk áhrif á stjórn þess. Langtímalán frá eigendum
fyrirtækis til fyrirtækisins, þar á meðal lántaka með sérstökum skilyrðum, sbr.
39. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, teljast einnig bein fjárfesting.
Innlend verðbréf merkja
hvers konar framseljanleg kröfuréttindi sem innlendur aðili gefur út, svo sem
hlutabréf, arðmiða, skuldabréf, vaxtamiða, hlutdeildarskírteini í
verðbréfasjóði, svo og framseljanleg skilríki fyrir eignarréttindum að öðrum
eignum en fasteignum eða einstökum lausafjármunum.
Erlend verðbréf merkja hvers
konar framseljanleg kröfuréttindi, sem erlendur aðili gefur út, svo sem
hlutabréf, arðmiða, skuldabréf, vaxtamiða, hlutdeildarskírteini í
verðbréfasjóði, svo og framseljanleg skilríki fyrir eignarréttindum að öðrum
eignum en fasteignum eða einstökum lausafjármunum.
II. KAFLI
Meginreglur um
gjaldeyrisviðskipti.
2. gr.
Óheft
gjaldeyrisviðskipti.
Gjaldeyrisviðskipti vegna inn- og útflutnings vöru og
þjónustu skulu vera óheft, svo og fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti
vegna þeirra, nema annað sé ákveðið í lögum.
Í reglugerð þessari er nánar kveðið á um skilyrði þau sem
gilda um gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar og réttindi og skyldur
þeirra er þau stunda.
3. gr.
Bein fjárfesting
erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi.
Fjárfesting erlends aðila í atvinnurekstri hér á landi er
háð þeim takmörkunum, sem kveðið er á um í lögum nr. 34/1991, um fjárfestingu erlendra
aðila í atvinnurekstri, með síðari breytingum. Um skilgreiningu á erlendum
aðila í þessu sambandi fer eftir þeim lögum og teljast því hérlend útibú
erlendra lögaðila til erlendra aðila.
Tilkynna ber Seðlabanka Íslands alla erlenda fjárfestingu í
atvinnurekstri jafnskjótt og samningur eða ákvarðanir þar að lútandi liggja
fyrir. Tilkynningarskyldan tekur bæði til fjárfestingar erlends aðila í
atvinnufyrirtæki sem hann hefur ekki átt í áður og viðbótarfjárfestingar í
slíku fyrirtæki. Tilkynningu skulu fylgja afrit eða ljósrit af skjölum eða
gögnum sem málið varða og teljast nauðsynleg að mati Seðlabankans. Sé um að
ræða erlenda fjárfestingu í íslensku atvinnufyrirtæki hvílir
tilkynningarskyldan á viðkomandi atvinnufyrirtæki en sé um að ræða fyrirhugaða atvinnustarfsemi
hér á landi í eigin nafni erlends aðila hvílir tilkynningarskyldan á honum.
4. gr.
Hlutabréfaviðskipti
erlendra aðila.
Kaup erlendra aðila á hlutabréfum í innlendum félögum eru
háð þeim takmörkunum, sem kveðið er á um í lögum nr. 34/1991, um fjárfestingu
erlendra aðila í atvinnurekstri, með síðari breytingum.
Tilkynna ber Seðlabankanum öll kaup erlendra aðila á
hlutabréfum í innlendum félögum jafnskjótt og samningur eða ákvarðanir þar að
lútandi liggja fyrir. Tilkynningarskyldan tekur bæði til kaupa erlends aðila á
hlutabréfum í félagi sem hann hefur ekki átt í áður og kaupa á viðbótarhlutafé
í slíku félagi. Tilkynningu skulu fylgja afrit eða ljósrit af skjölum eða
gögnum sem málið varða og teljast nauðsynleg að mati bankans. Tilkynningarskyldan
hvílir á viðkomandi félagi.
5. gr.
Fasteignaviðskipti
erlendra aðila hér á landi.
Um heimildir erlendra aðila til að kaupa eða öðlast
afnotarétt yfir fasteignum hér á landi fer eftir ákvæðum 1. gr. laga nr.
19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, með síðari breytingum.
Óheimilt er innlendum aðila að hafa milligöngu um
gjaldeyrisviðskipti erlendra aðila vegna kaupa eða leigu á fasteign nema
framvísað sé samningi, afsali eða öðrum heimildarskjölum með áritun
dómsmálaráðuneytisins.
6. gr.
Reikningar í
innlendum og erlendum innlánsstofnunum.
Innlendir aðilar sem opna bankareikninga erlendis eru
upplýsingaskyldir um stofnun þeirra til Seðlabankans.
Erlendum aðilum er heimilt að opna reikninga í íslenskum
krónum eða erlendri mynt í innlendum innlánsstofnunum enda séu reikningarnir
ávallt skráðir með nafni reikningseiganda og íslenskri kennitölu hans.
Innlánsstofnunum ber að skila reglulega upplýsingum um
innstæður á reikningum þessum til Seðlabankans.
7. gr.
Lántökur erlends
stjórnvalds.
Erlendu ríki, sveitarfélagi eða öðru erlendu stjórnvaldi er
óheimilt að gefa út skuldabréf á markaði hérlendis nema með leyfi Seðlabankans.
III. KAFLI
Öryggisákvæði.
8. gr.
Tímabundin
stöðvun tiltekinna fjármagnsflutninga.
Seðlabankanum er heimilt, þrátt fyrir ákvæði 2. gr., að
ákveða að höfðu samráði við viðskiptaráðuneytið að takmarka eða stöðva í allt
að sex mánuði einhverja eða alla eftirtalda flokka fjármagnshreyfinga ef
skammtímahreyfingar fjármagns til og frá landinu valda að hans mati
óstöðugleika í gengis- og peningamálum:
1. Viðskipti með skammtímaverðbréf.
2. Innlegg á og úttektir af reikningum í innlánsstofnunum.
3. Viðskipti með hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða sem
fjárfesta í skammtímaverðbréfum.
4. Lánveitingar og lántökur til skemmri tíma en eins árs
sem ekki tengjast milliríkjaviðskiptum með vöru og þjónustu.
5. Inn- og útflutningur skammtímaverðbréfa og innlends og
erlends gjaldeyris.
6. Aðrar skammtímahreyfingar fjármagns hliðstæðar þeim sem
taldar eru upp í 1.- 5. tölul.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
9. gr.
Heimildir til
gjaldeyrisviðskipta.
Þeir aðilar sem hyggjast hafa milligöngu um
gjaldeyrisviðskipti og versla með erlendan gjaldeyri, aðrir en þeir sem hafa
til þess heimild samkvæmt lögum eða alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að,
sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1992, skulu hafa til þess starfsleyfi frá
Seðlabankanum. Heimilt er Seðlabankanum við veitingu slíkra starfsleyfa að
afmarka þau við tiltekna þætti gjaldeyrisviðskipta, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga
nr. 87/1992.
Seðlabankinn setur nánari reglur um skilyrði til
gjaldeyrisviðskipta sem gilda um þá aðila sem leyfi hafa til
gjaldeyrisviðskipta samkvæmt lögum eða alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að
eða hafa starfsleyfi Seðlabankans, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 87/1992.
10. gr.
Hagskýrslugerð og
upplýsingaskylda.
Skylt er að veita Seðlabankanum allar þær upplýsingar um
gjaldeyrisviðskipti, verslun með erlendan gjaldeyri og fjármagnshreyfingar sem
hann kann að óska eftir til að hann geti sinnt nauðsynlegri hagskýrslugerð og
eftirliti. Bankanum er heimilt að setja nánari reglur þar um, svo sem um
skráningar- og tilkynningarskyldu vegna reikninga innlendra aðila í erlendum
innlánsstofnunum, framlagningu gagna, almenna upplýsingagjöf, þ.á.m. um
viðskipti sem fara fram án milligöngu þeirra er hafa starfsleyfi til
gjaldeyrisviðskipta, eða heimild til slíkra viðskipta samkvæmt lögum eða
alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að, og gerð eyðublaða.
11. gr.
Samstarfsnefnd um
gjaldeyrismál.
Viðskiptaráðherra skipar samstarfsnefnd um gjaldeyrismál. Í
henni sitja fulltrúar viðskiptaráðuneytisins, Seðlabanka Íslands og þeirra
aðila sem ráðherra velur til samstarfs. Fulltrúi viðskiptaráðuneytisins er
formaður nefndarinnar. Kostnaður af starfi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með framkvæmd
gjaldeyrismála, samræma verklagsreglur og vera stjórnvöldum til ráðuneytis um
gjaldeyrismál og framkvæmd þeirra.
12. gr.
Þagnarskylda.
Þeir sem annast framkvæmd þessarrar reglugerðar eru bundnir
þagnarskyldu um hagi einstakra viðskiptamanna og önnur atriði sem þeir fá
vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins
nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu
eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt
látið sé af starfi.
13. gr.
Viðurlög.
Um brot gegn ákvæðum þessarar reglugerðar fer eftir ákvæðum
13. gr. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.
14. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr.
87/1992, um gjaldeyrismál, öðlast gildi 1. janúar 1995. Jafnframt fellur úr
gildi reglugerð nr. 471/1992, um gjaldeyrismál.
Viðskiptaráðuneytið,
29. desember 1994.
Sighvatur
Björgvinsson.
Kjartan Gunnarsson.
Word útgáfa af reglugerð