Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

677/2002

Reglugerð um breytingu á reglugerð um útflutning hrossa, nr. 449 frá 25. júní 2002.

1. gr.

Núverandi 10. gr. reglugerðarinnar orðist svo eftir breytingar:
Hrossum sem flutt eru úr landi skal fylgja vottorð, hestavegabréf, frá Bændasamtökum Íslands er staðfesti uppruna, ætterni og hver sé eigandi hrossins við útflutning.

Bændasamtök Íslands skrá í hestavegabréfið örmerki/frostmerki hrossins, upplýsingar um kyn, lit, uppruna og ætterni og hver sé eigandi þess, auk annars er við á. Útflytjandi skal sjá um, að dýralæknir, annar en embættisdýralæknir í viðkomandi útflutningshöfn eða dýralæknar á hans vegum, færi í vegabréfið útlitsteikningu/auðkennateikningu, af hrossinu sem dýralæknir síðan staðfestir. Útflytjandi eða eigandi ber sjálfur þann kostnað sem hlýst af störfum dýralæknis við gerð útlitsteikningar/auðkennateikningar. Ef dýralæknir er útflytjandi eða eigandi hross er honum óheimilt að gera eða staðfesta útlitsteikningu/auðkennateikningu.

Upplýsingar í hestavegabréfi skulu vera í samræmi við kröfur innflutningslands. Embættisdýralæknir staðfestir fyrir útflutning að hestavegabréfið tilheyri viðkomandi hrossi og gefur út heilbrigðisvottorð. Útflytjendur hrossa greiða gjald vegna kostnaðar við útgáfu hestavegabréfa samkvæmt gjaldskrá sem landbúnaðarráðherra staðfestir að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands.

2. gr.

Við 10. gr. bætist ný málsgrein:
Gögn vegna útgáfu hestavegabréfs skulu hafa borist skrifstofu Bændasamtaka Íslands eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir útflutning.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um útflutning hrossa nr. 55/2002 og búnaðarlögum nr. 70/1998. Með reglugerð þessari er jafnframt felld úr gildi 2. gr. gjaldskrár Bændasamtaka Íslands vegna útgáfu hestavegabréfa fyrir útflutningshross frá 25. júní 2002.

Reglugerðin öðlast gildi 27. september 2002.

Landbúnaðarráðuneytinu, 18. september 2002.

Guðni Ágústsson.

Atli Már Ingólfsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.