REGLUGERÐ
um leigumiðlun.
I. KAFLI
Próf til réttinda
leigumiðlunar.
1. gr.
Skilyrði fyrir veitingu leyfis til leigumiðlunar er að
viðkomandi hafi lokið prófi er staðfestir að hann hafi góða þekkingu á húsaleigulögum,
lögum um húsaleigubætur, lögum um fjöleignarhús, kunnáttu í bókhaldi ásamt
hagnýtum atriðum sem reynt getur á við leigu húsnæðis, s.s. gerð umboða,
þinglýsingu og um skuldbindingargildi samninga.
2. gr.
Þeir sem óska eftir að fá leyfi til að reka leigumiðlun
skulu senda skriflega beiðni þess efnis til félagsmálaráðuneytis ásamt beiðni
um að gangast undir próf það sem tilgreint er í 1. gr.
3. gr.
Félagsmálaráðherra skal skipa prófnefnd sem skal hafa
yfirumsjón með prófunum. Félagsmálaráðherra skipar nefndina til þriggja ára í
senn. Nefndarmenn skulu vera þrír og a.m.k. einn þeirra lögfræðingur. Kostnaður
af störfum prófnefndar greiðist úr ríkissjóði.
4. gr.
Prófnefnd heldur gerðarbók. Í henni skal færa ákvarðanir
nefndarinnar og niðurstöður prófa.
5. gr.
Prófnefnd ákveður fjölda prófa og hvar og hvenær próf skulu
haldin. Próf skulu að jafnaði vera skrifleg. Við skrifleg próf skal nemandi
hafa a.m.k tvær klst. til að vinna að úrlausn.
6. gr.
Prófnefnd stendur fyrir prófum og tekur ákvörðun um efni
sem prófað er úr. Hafi nefndarmenn ekki sérþekkingu á bókhaldi er prófnefnd
heimilt að ráða aðila með sérþekkingu á sviði bókhalds til þess að semja þann
hluta prófverkefnis, fara yfir og gefa einkunn fyrir prófúrlausnir.
Einkunnir á prófum skulu gefnar í heilum og hálfum tölum
frá 0 til 10. Til þess að standast próf þarf viðkomandi að hljóta a.m.k. 7.0 í
einkunn. Mat prófnefndar á úrlausn er endanlegt.
7. gr.
Kostnað vegna prófa skal greiða með prófgjöldum er
félagsmálaráðherra ákveður að fenginni tillögu prófnefndar. Við ákvörðun
prófgjalds skal miða við að þeir sem gangast undir prófið greiði af því allan
kostnað. Námskeiðsgjald skal greitt fyrirfram áður en gengið er til prófs.
Prófgjald er óendurkræft.
II. KAFLI
Tryggingarskylda
leigumiðlara.
8. gr.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð og hugtök þessa
merkingu:
1. Viðskiptamaður: Einstaklingur eða lögaðili sem
leigumiðlari annast milligöngu um leigu fyrir.
2. Tjónstilvik: Hvert einstakt skaðabótaskylt atvik
er hefur tjón í för með sér, sbr. 91. gr. laga nr. 20/1954, um
vátryggingasamninga.
3. Ábyrgðartrygging: Vátrygging gegn skaðabótaábyrgð
sem vátryggður kann að baka sér gagnvart þriðja manni (tjónþola) vegna atvika
sem hafa tjón í för með sér og hann ber ábyrgð á. Tjónþoli nýtur ekki góðs af
ábyrgðartryggingu nema hann eigi skaðabótakröfu á hendur vátryggðum.
9. gr.
Leigumiðlara ber eftir almennum reglum skaðabótaréttar að
bæta viðskiptamönnum sínum það tjón sem hann kann að baka þeim með störfum
sínum.
10. gr.
Leyfi til leigumiðlunar er háð því skilyrði að fullnægjandi
tryggingar séu í gildi, sbr. 4. tl. 1. mgr. 74. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.
Til að fullnægja tryggingaskyldu skal leigumiðlari:
1. Kaupa vátryggingu hjá vátryggingarfélagi sem leyfi hefur
til starfsemi hér á landi, eða
2. afla sér bankatryggingar hjá viðskiptabanka eða
sparisjóði.
Falli vátrygging eða bankaábyrgð úr gildi skal
hlutaðeigandi vátryggingarfélag, viðskiptabanki eða sparisjóður tilkynna það
félagsmálaráðuneytinu þegar í stað með sannanlegum hætti. Vátryggingartíma eða
ábyrgðartíma telst þó eigi lokið fyrr en liðnir eru fjórir dagar frá því
félagsmálaráðuneytinu var tilkynnt um brottfall tryggingarinnar. Að þeim tíma
liðnum telst leyfi til leigumiðlunar úr gildi fallið nema önnur fullnægjandi
trygging hafi verið sett.
11. gr.
Vátrygging skal ná til þeirra tjónstilvika sem verða á
vátryggingatímabili sbr. 91. gr. laga um vátryggingasamninga nr. 20/ 1954.
Trygging leigumiðlara skv. 10. gr. skal vera
ábyrgðartrygging gegn skaðabótakröfum sem stofnast þegar viðskiptamaður hans
verður fyrir skaðabótaskyldu fjártjóni vegna starfsemi leigumiðlarans, sbr. 9.
gr. og valdið er af gáleysi. Ekki greiðast bætur vegna tjónsatburðar sem valdið
er af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi. Með tryggingunni skal greiða bætur
allt að 500.000 kr. vegna hvers einstaks tjónstilviks sem verður á hverju 12
mánaða millibili. Heildarfjárhæð tryggingarbóta innan hvers tólf mánaða
tryggingartímabils getur þó ekki orðið hærri en 1.500.000 kr.
Heimilt er að semja um sjálfsáhættu vátryggingartaka í
einstökum tjónum en slíkt ákvæði hefur engin áhrif á réttarstöðu þriðja manns.
Tilhögun eigin áhættu skal getið í vátryggingar-skilmálum,
vátryggingarskírteini eða iðgjaldskvittun.
Tryggingarfjárhæðir samkvæmt þessari grein eru miðaðar við
lánskjaravísitölu desember-mánaðar 1994 og skulu breytast í samræmi við
breytingar á henni.
12. gr.
Leigumiðlurum, vátryggingarfélögum, viðskiptabönkum og
sparisjóðum er óheimilt að takmarka ábyrgð sína samkvæmt framangreindum reglum
með samningum eða annan hátt.
13. gr.
Vátryggingarskilmálar vátryggingar samkvæmt kafla þessum og
breytingar á þeim skulu sendar Vátryggingareftirlitinu áður en þeir koma til
framkvæmda.
III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
14. gr.
Undanþegnir skilyrðum I. kafla reglugerðar þessarar eru
lögfræðingar. Sé leigumiðlari starfandi lögmaður, löggiltur fasteignasali eða
starfsmaður sveitarfélags er hefur starfstryggingu er uppfyllir skilyrði II.
kafla reglugerðarinnar þá er viðkomandi undanþeginn ákvæðum þess kafla.
15. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 82. gr.
húsaleigulaga nr. 36/1994, sbr. 74. gr., öðlast gildi 1. janúar 1995.
Ákvæði til
bráðabirgða.
Þeir sem við gildistöku reglugerðar þessarar stunda
leigumiðlun samkvæmt XV. kafla húsaleigulaga nr. 36/1994 og hafa ekki fengið
til þess löggildingu, samkvæmt lögum um húsa-leigusamninga nr. 44/1979 skulu
sækja um leyfi til félagsmálaráðherra innan þriggja mánaða frá gildistöku
laganna. Að sex mánuðum liðnum frá gildistöku laganna er með öllu óheimilt að
stunda leigumiðlun án leyfis þar að lútandi.
Félagsmálaráðuneytið,
28. desember 1994.
Össur
Skarphéðinsson.
Elín S. Jónsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð