Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

667/2001

Engri reglugerð breytt, bara reglum

REGLUGERÐ


um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna reglugerðar nr. 666/2001
um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum og reglugerðar nr. 26/2000
um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri.

I. KAFLI
Breyting á reglum um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa,
nr. 189/1994, með síðari breytingum.
1. gr.
Grein 1.1.orðist svo:
1.1. Ákvæði þessara reglna taka til allra íslenskra skipa og báta, með mestu lengd 6 metra eða meira. Reglurnar taka til gamalla farþegaskipa, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum eins og þau eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001, fram að þeim dagsetningum sem mælt er fyrir um í f-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 666/2001. Reglurnar taka þó ekki til nýrra farþegaskipa,sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum og háhraðafarþegafara, eins og þessi skip og för eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001. Reglurnar,að undanskildum ákvæðum 7. gr., ásamt tilheyrandi viðaukum, um losunar- og sjósetningarbúnað uppblásanlegra björgunarfleka (gúmmíbjörgunarbáta), taka heldur ekki til nýrra fiskiskipa, sem eru 24 metrar að lengd eða lengri, eins og þau eru skilgreind í 1. gr. reglugerðar nr. 26/2000. Nema annað sé sérstaklega tekið fram er lengd skipa, sem er tilgreind í þessum reglum, skráningarlengd, eins og hún er skilgreind í reglugerð nr. 527/1997 fyrir skip styttri en 24 metrar að lengd og 2. gr. reglugerðar nr. 26/2000 fyrir skip sem eru 24 metrar að lengd eða lengri.


2. gr.
Á eftir 22. tölul. 3. mgr. 1. gr. (1.3.) koma tveir nýir töluliðir sem orðast svo:
23. Farþegaskip er hvert það skip sem ætlað er að flytja farþega.
24. Skemmtibátur er bátur sem ætlaður er til íþrótta og tómstunda.


3.gr.
4. mgr. 5. gr. orðast svo:
5.4. Björgunarför farþegaskipa.
5.4.1. Á farþegaskipum, sem gildandi alþjóðasamþykkt um öryggi mannslífa á hafinu, frá 1974, SOLAS 74, með áorðnum breytingum, nær til, skulu vera um borð björgunarför í samræmi við þá samþykkt.
5.4.2. Farþegaskip, önnur en þau sem tilgreind eru í 5.4.1. og eru smíðuð fyrir 1. janúar 2001, skulu hafa björgunarför fyrir minnst 110% þess fjölda manna sem er um borð. Á tímabilinu 1. maí til 30. september ár hvert er þó heimilt að leyfa björgunarför fyrir sama fjölda manna og er um borð.
5.4.3. Farþegaskip, sem sigla á ám eða vötnum, skulu hafa björgunarför fyrir að minnsta kosti þann fjölda manna sem er um borð.


4. gr.
Við 5. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
5.5. Björgunarför skemmtibáta og annarra skipa.
5.5.1. Skemmtibátar,sem eru 8 m að lengd og lengri,skulu hafa björgunarför fyrir alla um borð.
5.5.2. Siglingastofnun Íslands ákveður hverju sinni hvaða björgunarförum önnur skip skulu búin en þau sem um getur í 5. gr. þessara reglna.


II. KAFLI
Breyting á reglum um eftirlit með skipum og öryggi þeirra,
nr. 11/1953, með síðari breytingum.
5. gr.
Í lok 1. gr. bætist við eftirfarandi málsliður:
Reglurnar taka til gamalla farþegaskipa, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum eins og þau eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001, fram að þeim dagsetningum sem mælt er fyrir um í f-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 666/2001. Að undanskildum 206. gr. og 233. gr. í X. kafla gilda þessar reglur ekki um ný fiskiskip, sem eru 24 metrar að lengd eða lengri, eins og þau eru skilgreind í 1. gr. reglugerðar nr. 26/2000, ný farþegaskip, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum og háhraðafarþegaför, eins og þessi skip og för eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001.


III. KAFLI
Breyting á reglum um raforku og raflagnir, nr. 28/1977,
með síðari breytingum.
6. gr.
Í lok 1. mgr. 1. gr. bætist við eftirfarandi málsliður:
Reglurnar taka til gamalla farþegaskipa,sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum eins og þau eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001, fram að þeim dagsetningum sem mælt er fyrir um í f-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 666/2001. Reglurnar taka þó ekki til nýrra farþegaskipa, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum og háhraðafarþegafara, eins og þessi skip og för eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001 og nýrra fiskiskipa, sem eru 24 metrar að lengd eða lengri, eins og þau eru skilgreind í 1. gr. reglugerðar nr. 26/2000.


IV. KAFLI
Breyting á reglum um björgunar- og öryggisbúnað vöruflutninga-
og farþegaskipa, nr. 3/1987.
7. gr.
Í lok 1. gr. bætist við eftirfarandi málsliður:
Reglurnar taka til gamalla farþegaskipa, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum eins og þau eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001, fram að þeim dagsetningum sem mælt er fyrir um í f-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 666/2001. Reglurnar taka þó ekki til nýrra farþegaskipa, sem mega flytja fleiri en 12 farþega í innanlandssiglingum og háhraðafarþegafara, eins og þessi skip og för eru skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001.


8. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 35/1993, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum og með hliðsjón af tilskipun ráðsins 98/18/EB frá 17. mars 1998, um öryggiskröfur og staðla fyrir farþegaskip og öðlast gildi 1. október 2001.


Samgönguráðuneytinu, 6. september 2001.

Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

    nr_953_2001.doc
Stofnreglugerð:
026/2000 - Reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt