Sjávarútvegsráðuneyti

664/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 64, 2. febrúar 1998, um þorskfisknet. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 64, 2. febrúar 1998, um þorskfisknet.

 

1. gr.

A-liður 2. mgr. 1. gr. breytist og orðist svo: Í Faxaflóa innan línu, sem dregin er úr Þormóðsskeri í Hellnagölt og þaðan í réttvísandi 53° að Búðahrauni.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 18. september 2000.

 

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson. 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica