|
|
651/2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 583/2000 um innflutning,
ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.
1. gr. Í stað hæðartölunnar „500“ í 1. málsl. 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 400.
2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 41. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 28. júlí 2010.
F. h. r.
Hugi Ólafsson. Íris Bjargmundsdóttir.

Stofnreglugerð: 583/2000 - Reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.
|