Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

647/2008

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almannatryggingar (lífeyristryggingar, atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi) (XI).

1. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 frá 7. febrúar 2006 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, að því er varðar jöfnun réttinda og einföldun málsmeðferðar, sem vísað er til í VI. viðauka (félagslegt öryggi) við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2006 frá 7. júlí 2006, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði hennar lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 fjallar að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu nr. 367/2008 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2006, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 52, 19. október 2006, bls. 16, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðisráðuneytisins nr. 367/2008.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 19. júní 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.
Ágúst Þór Sigurðsson.

B_nr_647_2008.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt