|
|
639/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 990/2001, um greiðslu vaxtabóta.
1. gr. Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Almennt skal miða við að tímabundnar aðstæður vari ekki lengur en þrjú ár, sem þó er heimilt að framlengja í fimm ár þegar sérstaklega stendur á.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í B-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 15. júní 2011.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir. Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Stofnreglugerð: 990/2001 - Reglugerð um greiðslu vaxtabóta.
|