Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

638/2004
felld brott með rg. nr. 960/2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003.

1. gr.
Á eftir orðunum „Framlög skulu greidd sveitarfélögum“ í a-lið 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: að ¾ hlutum fyrir 1. nóvember ár hvert en endanlegt uppgjör fer fram fyrir árslok á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 12. gr.


2. gr.
Á eftir orðunum „1. janúar 2005“ í ákvæði til bráðabirgða kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er þó að greiða eftir þann tíma framlög til framkvæmda sem hefjast fyrir lok árs 2004, enda liggi fyrir mat ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að brýn þörf sé á viðkomandi framkvæmdum. Framlög vegna framkvæmda á árinu 2005 skulu miðast við verkstöðu í lok þess árs.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félagsmálaráðuneytinu, 13. júlí 2004.

Árni Magnússon.
Guðjón Bragason.

    nr_638_2004.doc
Stofnreglugerð:
113/2003 - Reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt