|
|
637/2004
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að
ljúka átaki til einsetningar grunnskólans, nr. 303/2003.
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
a. Í stað ártalanna „2003–2005“ kemur: 2003–2006.
b. Í stað orðanna „fyrstu tvö árin“ kemur: fyrstu þrjú árin.
c. Í stað ártalsins „2005“ kemur: 2006.
2. gr. 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 13. júlí 2004.
Árni Magnússon. Guðjón Bragason.
Stofnreglugerð: 303/2003 - Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að ljúka átaki til einsetningar grunnskólans.
|