Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

632/2013

Reglugerð um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum. - Brottfallin

1. gr.

Frá gildistöku reglugerðar þessarar eru allar hvalveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

A. Á Faxaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°04,90′ N -22°41,40′ V (Garðskagavita)
  2. 64°15,50′ N- 22°29,50′ V
  3. 64°19,50′ N- 22°20,15′ V
  4. 64°19,50′ N- 22°05,00′ V

B. Á Eyjafirði og Skjálfandaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 66°11,6′ N - 18°49,3′ V (Siglunesviti)
  2. 66°17,8′ N - 17°06,8′ V (Lágey)
  3. 66°12,4′ N - 17°08,7′ V (Tjörnesviti)

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 10. gr. laga nr. 26, 3. maí 1949, um hvalveiðar. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26 3. maí 1949 um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott reglugerð um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum nr. 469/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júlí 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kristján Skarphéðinsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica