REGLUGERÐ
um úrskurðarnefnd
samkvæmt 8. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr.
73/1997.
1. gr.
Umhverfisráðherra skipar
úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála til fjögurra ára í senn.
Úrskurðarnefnd kveður upp úrskurði
í ágreiningsmálum um skipulags- og byggingarmál skv. skipulags- og
byggingarlögum. Í nefndinni eiga sæti þrír menn, einn án tilnefningar og tveir
tilnefndir af Hæstarétti Íslands. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar
og skal hann fullnægja skilyrðum þess að vera héraðsdómari. Varamenn skulu
tilnefndir á sama hátt.
2. gr.
Hverjum þeim sem telur rétti sínum
hallað með samþykkt byggingarnefndar og/eða sveitarstjórnar er heimilt að
skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar með kæru. Kærufrestur er einn mánuður frá
því að kæranda var kunnugt um þá samþykkt sem hann kærir.
Sé um að ræða önnur kæruatriði en
varða samþykkt byggingarnefndar og/eða sveitarstjórnar er þeim sem telur rétti
sínum hallað heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar með kæru.
Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að aðila var tilkynnt um
stjórnvaldsákvörðun.
3. gr.
Kæra til úrskurðarnefndar skal
vera skrifleg og í henni skal skilmerkilega greina hvert úrskurðarefnið er,
hver sé krafa aðila og rökstuðningur fyrir henni.
4. gr.
Úrskurðarnefnd skal kveða upp
úrskurð svo fljótt sem kostur er og jafnan innan tveggja mánaða frá því að kæra
berst henni í hendur. Sé mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki
lengri tíma skal nefndin tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest
sem aldrei skal þó vera lengri en þrír mánuðir.
5. gr.
Komi fram í ágreiningsmáli krafa
um stöðvun framkvæmda skal úrskurðarnefndin þegar í stað kveða upp úrskurð um
það atriði. Úrskurð um stöðvun ber sveitarstjórn að framfylgja þegar í stað,
með aðstoð lögreglu ef með þarf.
6. gr.
Úrskurðarnefnd er heimilt að kalla
eftir upplýsingum og gögnum og óska umsagnar frá öðrum sem málið snertir og
viðkemur og kveðja sér til fulltingis sérfróða aðila við úrskurð einstakra
mála.
7. gr.
Úrskurðir nefndarinnar eru
fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til
umhverfisráðherra.
8. gr.
Um málsmeðferð fyrir
úrskurðarnefnd fer að öðru leyti samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
9. gr.
Kostnaður vegna úrskurðarnefndar
greiðist úr ríkissjóði. Sérstakur starfsmaður skal ráðinn til þess að vera
framkvæmdastjóri nefndarinnar. Skal hann uppfylla skilyrði til þess að vera
héraðsdómari.
10. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
2. mgr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og öðlast gildi 1.
janúar 1998.
Umhverfisráðuneytinu, 30. október 1997.
Guðmundur Bjarnason.
Magnús
Jóhannesson.
Word útgáfa af reglugerð