|
|
607/2005
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða
og eftirlit með þeim, með síðari breytingum.
1. gr. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða orðist svo:
Eftir 1. janúar 2006 mega þeir einir framkvæma aðalskoðun sem hlotið hafa faggildingu til þess.
2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 24. júní 2005.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir. Sigurbjörg Sæmundsdóttir.
Stofnreglugerð: 942/2002 - Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
|