Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

599/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 657/2009, um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða.

1. gr.

3. málsliður 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Við hönnun, byggingu og endurnýjun skólahúsnæðis skulu sveitarfélög ennfremur hafa samráð við hagsmunaaðila skólasamfélagsins og aðila í grenndarsamfélagi, svo sem foreldra, nemenda, fulltrúa íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafélaga, ungmennaráða og aðila úr atvinnulífinu.

2. gr.

Á eftir orðunum "hljóðvist og lýsingu," í 4. málslið 3. gr. bætist: loftgæði og loftræstingu,

3. gr.

Við 1. mgr. 7. gr. bætist við nýr málsliður, 2. málsl., sem orðist svo: Sérstaklega skal hugað að öryggiskröfum í verkmenntastofum um vélar, tæknilegan búnað, efnisnotkun, loftgæði og loftræstingu og aðgengi að fyrstu hjálp.

4. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Handbók um öryggi nemenda og slysavarnir í skólum.

Ráðuneytið, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, skal útbúa rafræna handbók fyrir starfsfólk grunnskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi og velferð nemenda og slysavarnir í grunnskólum. Skal handbókin endurskoðuð reglulega.

Handbókin skal grundvölluð á gildandi lögum og reglugerðum um starfsemi grunnskóla, lögum og reglugerðum um öryggis-, skipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir grunnskóla, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Einnig skal höfð hliðsjón af reglugerð um vélar og tæknilegan búnað og vinnuumhverfisvísum Vinnueftirlits ríkisins, eftir því sem við á.

Handbókin skal vera aðgengileg opinberlega og ber skólastjóri ábyrgð á að hún sé sérstaklega kynnt öllu starfsfólki skóla og öðrum aðilum í skólasamfélaginu.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. maí 2014.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.