REGLUGERÐ
um
breytingu á reglugerð nr. 403 18. september 1986 um varnir gegn
fisksjúkdómum
og heilbrigðiseftirlit með fiskeldisstöðvum.
1. gr.
1. mgr. 17. gr. orðist svo:
Forráðamenn
fiskeldisstöðva skulu láta fara fram sótthreinsun á öllum hrognum sem þeir ætla
að ala, afhenda til eldis eða koma fyrir til náttúrulegs klaks í ám og vötnum.
2. gr.
Reglugerð þessi
er sett samkvæmt heimild í 66. og 81. gr. laga nr. 76/1970 um lax- og
silungsveiði, laga nr, 77/1981 um dýralækna með síðari breytingum og 2. mgr.
11. gr. laga nr. 50/1986 um Rannsóknadeild fisksjúkdóma og öðlast gildi þegar í
stað.
Landbúnaðarráðuneytið,
15. desember 1989.
Steingrímur
J. Sigfússon.
Jón
Höskuldsson
Word útgáfa af reglugerð