Fjármálaráðuneyti

590/2000

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (II)). - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1290/97 frá 27. júní 1997 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja og reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/98 frá 4. júlí 1998 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Í reglugerðum þessum er meðal annars fjallað um réttindi úr lífeyrissjóðum og rétt til barnabóta.

Reglugerðin, sbr. 1. mgr., fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi og réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar. Reglugerð félagsmálaráðuneytisins um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof kveður á um gildistöku í þeim tilvikum. Einnig kveður reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins á um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar.


2. gr.

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1290/97 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/98, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 21, bls. 255-272, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 588/2000.


3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og 119. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 22. ágúst 2000.

F. h. r.
Árni Kolbeinsson.
Tómas N. Möller.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica