|
|
588/2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 37/1989, um greiðslur samkvæmt 38. gr. laga
um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.
1. gr. Orðin „Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli“ í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar falla brott.
2. gr. Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, og heimild í 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 9. júní 2008.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson. Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Stofnreglugerð: 037/1989 - Reglugerð um greiðslur samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda
|