Reglugerð
um
hámarksvexti í líftryggingasamningum í íslenskum krónum.
1. gr.
Líftryggingafélögum sem hafa starfsleyfi
hér á landi, sbr. lög nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi, er heimilt að gefa
loforð um vexti í líftryggingasamningum í íslenskum krónum að hámarki 3% til
viðbótar verðtryggingu, og að hámarki 4,5% í óverðtryggðum
líftryggingasamningum.
Þegar gildistími líftryggingasamnings í íslenskum krónum er
átta ár eða skemmri, og iðgjald er greitt í eitt skipti fyrir öll, mega loforð
um vexti þó hæst nema 5,5% til viðbótar verðtryggingu og 7% í óverðtryggðum
líftryggingasamningum.
Ákvæðin um hámark vaxta skulu endurskoðuð eigi sjaldnar en
einu sinni á ári.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í
98. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastarfsemi, sbr. ákvæði 18. gr.
tilskipunar 92/96/EBE sem fellur undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið,
og öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytið,
31. október 1995.
Finnur
Ingólfsson.
Þorkell Helgason.
Word útgáfa af reglugerð