Reglugerð um
1. breytingu
á reglugerð nr. 289/1994 um
leysiefni til
notkunar í matvælaiðnaði.
1. gr.
Viðauki reglugerðar nr. 289/1994 breytist á
eftirfarandi hátt:
Leysiefninu sýklóhexani er bætt við III. hluta með
leyfilegu hámarksmagni 1 mg/kg.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum
nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 81/1988 um hollustuhætti og
heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum
samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, tilskipun 94/52/EBE um 2. breytingu á
tilskipun 88/344/EBE um leysiefni til notkunar í matvælaiðnaði. Reglugerðin
öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytið,
23. október 1995.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
Sigurbjörg
Sæmundsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð