Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

559/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 398/2005, um endurgreiðslu olíugjalds til sendimanna erlendra ríkja.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Utanríkisráðuneytið afgreiðir beiðni um endurgreiðslu. Beiðni skal fylgja fumrit þeirra reikninga sem endurgreiðslubeiðni er byggð á. Utanríkisráðuneytið gengur úr skugga um að í hlut eigi aðilar er undir reglurnar falla og að endurgreiðslubeiðni uppfylli skilyrði reglugerðar þessarar. Frumrit samþykktrar beiðni er send til Fjársýslu ríkisins sem annast endurgreiðslu. Afrit samþykktrar endurgreiðslubeiðni er send til umsækjanda ásamt frumriti reikninga.

Ekki verður um endurgreiðslu að ræða nema heildarfjárhæð hvers einstaks reiknings nemi a.m.k. 7.000 kr. með virðisaukaskatti. Utanríkisráðuneytið skal heimila endurgreiðslu innsendra reikninga vegna fastra mánaðarlegra reikningsviðskipta nái heildarfjárhæð slíkra reikninga a.m.k. 7.000 kr. með virðisaukaskatti.

Utanríkisráðuneytið skal afgreiða beiðnir um endurgreiðslu 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember ár hvert.

Reikningar þeir sem endurgreiðslubeiðni er byggð á skulu vera greiddir. Til staðfestingar á greiðslu skal greiðslukvittun fylgja greiddum reikningum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 23. gr. laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 18. júní 2010.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Sóley Ragnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.