REGLUGERÐ
um gjalddaga og
fullnustu aðflutningsgjalda.
1. gr.
Aðflutningsgjöld falla í gjalddaga þegar far, sem flytur
vöru til landsins, tekur höfn þar sem vara verður affermd. Greiða skal í einu
lagi aðflutningsgjöld af vörum sem skráðar eru í sama farmskrárnúmeri, nema
skipting farmskrárnúmers hafi verið heimiluð eða vörur hafi verið látnar í
tollvörugeymslu.
Af vöru sem er í vörslu farmflytjanda skulu
aðflutningsgjöld greidd innan tólf mánaða, talið frá gjalddaga. Af vöru sem
hefur verið látin í tollvörugeymslu skulu aðflutningsgjöld greidd innan þriggja
ára, talið frá gjalddaga, nema fjármálaráðherra hafi heimilað lengri
greiðslufrest.
2. gr..
Aðflutningsgjöld skulu greidd tollstjóra þar sem vara er
flutt úr fari því sem hana flytur til landsins. Sé vara framsend ótollafgreidd
samkvæmt ákvæðum V. kafla laga nr. 59/1969 um tollheimtu og tolleftirlit með
áorðnum breytingum skal þó greiða gjöldin í því umdæmi sem varan er send til.
3. gr.
Tollstjóri getur stöðvað tollafgreiðslu á öðrum vörum til
þess sem er í vanskilum með aðflutningsgjöld þar til greiðsla á eindöguðum
aðflutningsgjöldum ásamt dráttarvöxtum og öðrum kostnaði hefur farið fram.
4. gr.
Aðflutningsgjaldsskyld vara er að veði fyrir
aðflutningsgjöldum, sektum, dráttarvöxtum og kostnaði, og hefur eigandi ekki
rétt til að ráða yfir henni fyrr en búið er að greiða gjöld þessi, sektir,
dráttarvexti og kostnað. Helst veðrétturinn eins, þótt varan hafi verið afhent
viðtakanda.
5. gr.
Sé vara tekin úr vörslu farmflytjanda eða tollvörugeymslu
eða til notkunar án þess að skriflegt leyfi tollstjóra liggi fyrir eru
aðflutningsgjöld þegar fallin í eindaga. Telst hann í því tilviki hinn sami og
gjalddagi skv. 1. mgr. 1. gr. hafi vara verið í vörslu farmflytjanda, en hafi
hún verið sett í tollvörugeymslu telst hann sá dagur þegar tollstjóri veitti
leyfi til flutnings vöru þangað, nema sannað sé á fullnægjandi hátt að mati
tollstjóra að atvik þessi séu síðar til komin.
Þegar atvik eru eins og um ræðir í 1. mgr. þessarar greinar
skulu aðflutningsgjöld af viðkomandi vöru reiknuð út samkvæmt
tollafgreiðslugengi sem í gildi er þegar vara er tekin til tollmeðferðar, sbr.
11. og 14. gr. laga nr. 120/1976 um tollskrá o. fl., og dráttarvextir jafnframt
innheimtir. Dráttarvextir skulu vera hinir sömu og hámarksvanskilavextir í
skuldaskiptum þegar gengistrygging helst á gjaldfallinni fjárhæð, til viðbótar
vöxtum af innlendum gjaldeyrisreikningum fyrir hlutaðeigandi gjaldeyri eins og
vextir þessir ásamt hámarksvanskilavöxtum eru ákveðnir skv. 13. gr. laga nr.
10/1961 og ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Sé hlutaðeigandi
gjaldeyrir ekki skráður í vaxtatilkynningu Seðlabankans skal miða við almenna
sparisjóðsvexti í viðkomandi landi eins og Seðlabankinn gefur þá upp samkvæmt
beiðni hverju sinni. Dráttarvextirnir skulu reiknaðir af aðflutningsgjöldunum
eins og þau eru ákveðin samkvæmt ákvæðum þessarar málsgreinar, talið frá
eindaga til þess dags er varan er tekin til tollmeðferðar. Séu aðflutningsgjöld
ásamt dráttarvöxtum eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt framansögðu ekki greidd
um leið og vara er tekin til tollmeðferðar skal innheimta af skuldinni, frá
þeim tíma og þar til aðflutningsgjöld eru að fullu greidd, sömu dráttarvexti og
innlánsstofnunum er heimilt að áskilja sér skv. 13. gr. laga nr. 10/1961 og
ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma.
6. gr.
Séu aðflutningsgjöld sem á vöru hvíla ekki greidd á eindaga
eins og hann er ákveðinn skv. 1. og 5. gr. má tollstjóri láta selja vöruna á
uppboði, án undanfarandi lögtaks eða fjárnáms, til lúkningar gjöldum, sektum,
dráttarvöxtum og kostnaði. Skal uppboð vöru boðað með minnst viku fyrirvara.
Náist ekki til vöru sem greiða átti af aðflutningsgjöld má
án undanfarandi birtingar gera lögtak fyrir aðflutningsgjöldunum, sektum,
dráttarvöxtum og kostnaði í öðrum eignum viðtakanda og selja hið lögtekna á
uppboði á sama hátt og að framan greinir um gjaldskylda vöru skv. 1. mgr.
Aðflutningsgjöld greiðast af uppboðsandvirði með
forgangsrétti næst á eftir uppboðskostnaði og getur tollstjóri eða umboðsmaður
hans krafist borgunar við hamarshögg. Sé uppboðsandvirði vörunnar hærra en
nemur aðflutningsgjöldum ásamt sektum, dráttarvöxtum og áföllnum kostnaði skal
greiða vörueigandanum afganginn, ef hann gefur sig fram innan árs frá
uppboðsdegi. Að þeim tíma liðnum fellur fjárhæðin til ríkissjóðs.
7 . gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr.
59/1969 um tollheimtu og tolleftirlit og lögum nr. 47/1960 um tollvörugeymslur
o. fl. og öðlast þegar gildi. Jafnframt er frá sama tíma felld úr gildi 68. og
69. gr. reglugerðar nr. 41/1957 um tollheimtu og tolleftirlit svo og önnur
fyrirmæli sem ekki samrýmast ákvæðum þessarar reglugerðar.
Fjármálaráðuneytið.
21. júlí 1983.
Albert
Guðmundsson.
Höskuldur Jónsson.
Word útgáfa af reglugerð