REGLUGERĐ
um sérfrćđileyfi í félagsráđgjöf.
1. gr.
Rétt
til ađ kalla sig sérfrćđing á sérsviđi innan félagsráđgjafar hafa ţeir
félagsráđgjafar einir, er til ţess hafa fengiđ leyfi heilbrigđis- og
tryggingamálaráđuneytisins.
2. gr.
Til
ţess ađ félagsráđgjafi geti átt rétt á ađ öđlast sérfrćđileyfi skal hann hafa
fullnćgt ţeim kröfum, er hér greinir:
1.
Hlotiđ leyfi heilbrigđis- og tryggingamálaráđherra til ađ kalla sig
félagsráđgjafa, sbr. 1. gr. laga nr. 95/1990 um félagsráđgjöf.
2.
Lokiđ framhaldsnámi og ađfararnámi samkvćmt 3. gr. sbr. 13. gr.
3.
Stundađ sérnám og starfsţjálfun samkvćmt 7. og 8. gr.
4.
Lokiđ ritsmíđ og fullnćgt ákvćđum 10. gr.
3. gr.
Til
ţess ađ geta hafiđ sérnám í félagsráđgjöf skal félagsráđgjafi hafa lokiđ eigi
minna en 5 ára háskólanámi međ framhaldsnámi í félagsráđgjöf. Grunnnám má vera
í annarri háskólagrein, sem er tengd félagsráđgjöf.
4. gr.
Sérnám
og starfsţjálfun samkvćmt 7. og 8. gr. má einungis fara fram á ţeim frćđslu-,
ţjónustu- og međferđarstofnunum, sem viđurkenndar eru. Heilbrigđis- og
tryggingamálaráđuneytiđ veitir slíka viđurkenningu ađ fengnum tillögum
sérfrćđinefndar sbr. 13. gr., sem metur starfsemi stofnana og hćfni
leiđbeinenda og handleiđara. Nefndin endurskođar mat sitt á tveggja ára fresti.
Félagsráđgjafar,
sem stunda sérnám, skulu ađ jafnađi vera í fullu starfi á ţeim stofnunum ţar
sem ţeir nema, en ţó aldrei minna en 50% og lengist ţá starfsţjálfunartíminn og
fjöldi handleiđslutíma ađ sama skapi.
Heimilt
er ađ veita ţeim félagsráđgjöfum sérfrćđileyfi, sem fengiđ hafa sérfrćđileyfi
eđa lokiđ sérnámi í öđrum löndum, séu kröfur sambćrilegar, enda ţótt
námstilhögun sé međ öđrum hćtti. Sérnám ásamt starfsţjálfun međ handleiđslu má
ţó aldrei standa skemur en í 4 ár ađ loknu framhaldsnámi.
5. gr.
Félagsráđgjafi
getur sótt um sérfrćđileyfi á einu af fjórum sérsviđum félagsráđgjafar:
1.
Félagsráđgjöf á heilbrigđissviđi - klínísk félagsráđgjöf.
2.
Félagsráđgjöf í félagsţjónustu.
3.
Félagsráđgjöf á frćđslu- og skólasviđi.
4.
Félagsráđgjöf í fangelsismála- og dómskerfi.
Veita
má sérfrćđileyfi á öđrum sviđum en ţeim sem nú er gert ráđ fyrir, ef
félagsráđgjafi hefur uppfyllt sömu kröfur og ţar eru gerđar. Sérfrćđinefnd
úrskurđar um slík mál.
Heimilt
er ađ veita sérfrćđileyfi í undirgrein og fer ţađ eftir mati sérfrćđinefndar
hvađ telja má undirgrein.
6. gr.
Til
ţess ađ fá sérfrćđileyfi ţarf félagsráđgjafi ađ hafa lokiđ starfsţjálfun eigi
skemur en í 5 ár á ađalsviđi skv. eftirfarandi lýsingu. Til ţess ađ fá
sérfrćđileyfi í undirgrein skal hann ţar af hafa lokiđ tveggja ára viđurkenndri
ţjálfun á sviđi undirgreinar.
1.
Félagsráđgjöf á heilbrigđissviđi - klínísk félagsráđgjöf.
a)
36 mánuđir á deildum eđa stofnunum, sem veita heilbrigđisţjónustu. Ţar af
minnst 12 mánuđir á almennum geđdeildum, 12 mánuđir á barna- og
unglingageđdeild, 12 mánuđir á almennum sjúkradeildum.
b)
12 mánuđir á deildum eđa stofnunum heilbrigđisţjónustu fyrir börn, fullorđna
eđa aldrađa.
c)
12 mánuđir á deildum eđa stofnunum, sem tengjast greininni.
2.
Félagsráđgjöf í félagsţjónustu.
a)
36 mánuđir á sviđi félagsţjónustu á vegum ríkis- og sveitarfélaga, ţar af
minnst 12 mánuđir međ börnum og unglingum.
b)
12 mánuđir á félagsmálastofnunum eđa félagsmálanefnd/félagsmálaráđi
sveitarfélaga.
c)
12 mánuđir á vettvangi sem tengist greininni.
3.
Félagsráđgjöf á frćđslu og skólasviđi.
a)
36 mánuđir á frćđslusviđi, í skólum eđa á međferđarstofnunum fyrir börn og
unglinga á skólaaldri.
b)
12 mánuđir á ráđgjafar- eđa frćđsluskrifstofu, félagsmálastofnun međ ţjónustu
viđ skóla.
c)
12 mánuđir á deildum eđa stofnunum, sem tengjast greininni.
4.
Félagsráđgjöf í réttarkerfi: fangelsismála- og dómskerfi.
a)
36 mánuđir á sviđi fangelsis- og dómsmála; viđ fangelsi, skilorđseftirlit eđa
stofnanir, sem undirbúa mál fyrir dómi/úrskurđi.
b)
12 mánuđir á stofnunum er veita međferđ, ráđgjöf eđa ađra ţjónustu fyrir
gerendur/ţolendur og fjölskyldur ţeirra.
c)
12 mánuđir á deildum eđa stofnunum, sem tengjast greininni.
7. gr.
Til
ţess ađ fá viđurkenningu sem sérfrćđingur ţarf félagsráđgjafi ađ hafa fengiđ
handleiđslu á starfsţjálfunartímanum sem nemur 120 handleiđslutímum í
einstaklingshandleiđslu og 40 tímum í hóphandleiđslu.
8. gr.
Til
ţess ađ fá viđurkenningu sem sérfrćđingur ţarf félagsráđgjafi ađ hafa lokiđ
frćđilegu námi sem nánari skilyrđi eru sett um í vinnureglum sérfrćđinefndar.
9. gr.
Til
ţess ađ fá viđurkenningu sem sérfrćđingur ţarf félagsráđgjafi ađ hafa samiđ
ritsmíđ um frćđilegt efni í félagsráđgjöf innan sérfrćđisviđsins. Gerđ er krafa
um sjálfstćtt frćđilegt ritverk sem byggir á eigin rannsókn á sviđinu.
Ritverkiđ skal hafa veriđ birt í viđurkenndu vísindatímariti eđa í sérstöku
riti/bćklingi/bók ţar sem frćđilegum kröfum er fylgt.
10. gr.
Heimilt
er ađ synja félagsráđgjafa um sérfrćđileyfi, ţótt hann fullnćgi ákvćđum
ţessarar reglugerđar, ef óeđlilega langur tími telst liđinn frá ţví hann lauk
samfelldu sérnámi eđa ef ađrar gildar ástćđur mćla gegn veitingu
sérfrćđileyfis.
11. gr.
Sérfrćđingur
skal endurnýja sérfrćđileyfi sitt á tíu ára fresti og stađfesta ađ hann starfi
og hafi viđhaldiđ menntun sinni á ţví sviđi sem hann hefur sérfrćđileyfi á.
12. gr.
Umsóknir
um sérfrćđileyfi í félagsráđgjöf ásamt stađfestum vottorđum yfirmanna,
leiđbeinenda og handleiđara og öđrum nauđsynlegum fylgiskjölum ásamt ritsmíđ
til sérfrćđiviđurkenningar skal senda til heilbrigđis- og tryggingamálaráđuneytisins.
Heilbrigđis- og tryggingamálaráđuneytiđ veitir sérfrćđileyfi í félagsráđgjöf ađ
fenginni umsögn landlćknisembćttisins og ţriggja manna sérfrćđinefndar sem
ráđherra skipar. Í nefndinni skal einn tilnefndur af Stéttarfélagi íslenskra
félagsráđgjafa, einn fulltrúi félagsráđgjafar viđ Háskóla Íslands og einn
tilnefndur af heilbrigđis- og tryggingamálaráđuneytinu. Sérfrćđinefnd skal
setja sér vinnureglur um ađfararnám, handleiđslu, frćđilegt nám og nýjar
undirgreinar.
Sérfrćđinefndinni
til ráđgjafar er 3ja manna matsnefnd. Hún skal skipuđ tveimur fulltrúum frá
Stéttarfélagi íslenskra félagsráđgjafa og fulltrúa félagsráđgjafar viđ Háskóla
Íslands og er hann formađur matsnefndarinnar.
Áđur
en sérfrćđileyfi í félagsráđgjöf á félagssviđi (ađalsviđ), í barnavernd
(undirgrein) og fötlun (undirgrein) er veitt skal leitađ umsagnar
félagsmálaráđuneytisins. Áđur en sérfrćđileyfi í réttarfélagsráđgjöf (ađalsviđ)
er veitt skal leitađ umsagnar dómsmálaráđuneytisins.
Heilbrigđis-
og tryggingamálaráđuneytiđ heldur skrá yfir ţá sem hafa sérfrćđileyfi hverju
sinni.
13. gr.
Reglugerđ
ţessi er sett skv. 4. gr. laga nr. 95/1990 um félagsráđgjöf og öđlast ţegar
gildi.
Ákvćđi til bráđabirgđa.
Heimilt
er ađ veita undanţágu frá ákvćđum 3. og 4. gr. og viđurkenna starfsreynslu og
frćđilega ţekkingu félagsráđgjafa, sem starfađ hafa í meira en 25 ár, í eitt ár
frá ţví ađ reglugerđ ţessi tekur gildi. Krafan um ritsmíđ skv. 10. gr. er
ófrávíkjanleg.
Heilbrigđis- og
tryggingamálaráđuneytinu, 6. júlí 1999.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Ragnheiđur
Haraldsdóttir.
Word útgáfa af reglugerđ