Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

548/2006

REGLUGERÐ
um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.
Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 185.400 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Til að finna út atvinnuleysisbætur fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga.


2. gr.
Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 5.123 kr. á dag. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast gildi 1. júlí 2006. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 524/1996, um greiðslu atvinnuleysisbóta, reglugerð nr. 545/1996, um greiðslu atvinnuleysisbóta, reglugerð nr. 329/2001, um greiðslu atvinnuleysisbóta til útlendinga á tímabundnu leyfi, reglugerð nr. 316/2003, um rétt sjálfstætt starfandi einstaklinga til greiðslna úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sbr. einnig reglugerð nr. 977/2003, og reglugerð nr. 317/2003, um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Félagsmálaráðuneytinu, 30. júní 2006.

Magnús Stefánsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
B_nr_548_2006.doc

Breytingar:
1253/2007 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
566/2011 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
1219/2008 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
1224/2011 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt