Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

546/2003

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003.

1. gr.
Í viðauka 2 bætist við nýr töluliður, 10. töluliður, er orðast svo:
10.Gild ferðabréf fyrir íbúa Kosovo (UNMIK Travel Document) sem gefin eru út af skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kosovo (UNMIK – United Nations Mission in Kosovo).


2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3:
Orðið „Ekvador“ í I. kafla fellur brott.
Orðin „Stóra-Bretlandi“ í 1. tölulið II. kafla falla brott.


3. gr.
Eftirfarandi breyting verður á viðauka 5:
Í stað:
Nígería – Lagos – Sendiráð Noregs
kemur:
Nígería – Abuja – Sendiráð Noregs


4. gr.
Í viðauka 5 falla brott eftirtaldir staðir og sendistofnanir:
Bandaríkin – Washington – Sendiráð Danmerkur.
Jamaíka – Kingston – Sendiráð Hollands.
Kúveit – Kúveit – Sendiráð Finnlands.


5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 58. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002, öðlast þegar gildi.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 8. júlí 2003.

Björn Bjarnason.
Björn Friðfinnsson.

    nr_546_2003.doc
Stofnreglugerð:
053/2003 - Reglugerð um útlendinga.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt