Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

534/2008

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003 með síðari breytingum.

1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 2. gr., er kveður á um heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitar­félaga vegna húsaleigubóta, mun ríkissjóður Íslands með vísan til samkomulags hans og Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. apríl 2008, greiða 60% af þeim heildarkostnaði sem leiða mun af hækkun húsaleigubóta og greiðslu sérstakra húsaleigubóta á grundvelli samkomulagsins.

Ákvæðið gildir til 31. mars 2010.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.


Samgönguráðuneytinu, 3. júní 2008.

Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_534_2008.doc

Stofnreglugerð:
122/2003 - Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt