Reglugerð
um eftirlit
með hættu á snjóflóðum
I. KAFLI
Athugunarmenn.
1. gr.
Lögreglustjórar ráða, hver í sínu
lögsagnarumdæmi, athugunarmenn til að fylgjast með landfræðilegum og
veðurfarslegum aðstæðum með tilliti til hættu af snjóflóðum. Við ráðningu
athugunarmanns skal lögreglustjóri hafa samráð við viðkomandi sveitarstjórnir,
almannavarnanefndir og Veðurstofu Íslands.
2. gr.
Lögreglustjóri auglýsir starf
athugunarmanns. Í auglýsingu skulu helstu verkefni athugunarmanns tilgreind.
Lögreglustjóri skal leita umsagnar viðkomandi
sveitarstjórna, almannavarnanefnda og Veðurstofu Íslands um umsækjendur áður en
hann tekur ákvörðun um ráðningu.
3. gr.
Athugunarmaður skal starfa í hverjum
byggðarkjarna þar sem 200 manns eða fleiri búa við snjóflóðahættu að mati
Almannavarna ríkisins. Lögreglustjóri getur, að höfðu samráði við viðkomandi
sveitarstjórnir, falið athugunarmanni að annast athuganir í fleiri en einu
byggðarlagi.
Heimilt er að ráða mann til að leysa af og aðstoða
athugunarmann.
II. KAFLI
Störf
athugunarmanna.
4. gr.
Athugunarmenn starfa undir stjórn
lögreglustjóra. Starfstími þeirra skal nánar skilgreindur í ráðningarsamningi
með hliðsjón af aðstæðum á hverjum stað og að höfðu samráði við Veðurstofu Íslands.
5. gr.
Veðurstofa Íslands skilgreinir verkefni
athugunarmanna og setur þeim verklagsreglur um tilhögun, umfang og tíðni
athuguna, svo og meðferð og skil á niðurstöðum þeirra.
III. KAFLI
Þjálfun og
búnaður.
6. gr.
Veðurstofa Íslands skal sjá til þess að
allir nýir athugunarmenn fái kennslu og þjálfun áður en þeir hefja störf. Enn
fremur skulu á vegum Veðurstofunnar haldin reglulega endurmenntunarnámskeið
fyrir starfandi athugunarmenn. Athugunarmönnum er skylt að sækja þessi
námskeið.
7. gr.
Athugunarmönnum skal séð fyrir nauðsynlegum
búnaði og tækjum til að annast þau verkefni sem þeim eru falin. Almannavarnir
ríkisins setja, að fengnum tillögum Veðurstofu Íslands, nánari reglur um hvaða
búnað og tæki er að ræða.
Veðurstofa Íslands leggur athugunarmönnum til
rannsóknartæki og -búnað. Lögreglustjóri sér, í samráði við Veðurstofu,
athugunarmönnum fyrir öðrum búnaði og tækjum, svo og starfsaðstöðu og geymslu
fyrir tæki og búnað.
Lögreglustjóra er heimilt að gera samning við athugunarmann
um að hann sjái sér fyrir aðstöðu, og búnaði og tækjum, gegn greiðslu.
Búnaður og tæki athugunarmanna, sem keypt eru með fé úr
ofanflóðasjóði, skulu vera merkt samkvæmt kröfum Almannavarna ríkisins.
IV. KAFLI
Starfskjör.
8. gr.
Laun athugunarmanna og aðstoðarmanna þeirra
miðast við kjarasamning ríkisins við Starfsmannafélag ríkisstofnana.
Samningar um laun og kjör athugunarmanna eru háðir samþykki
Almannavarna ríkisins.
V. KAFLI
Greiðslur
ofanflóðasjóðs.
9. gr.
Ofanflóðasjóður greiðir, í samræmi við reglur
sínar, kostnað vegna kaupa Veðurstofu Íslands á rannsóknartækjum og -búnaði
fyrir athugunarmenn.
10. gr.
Ofanflóðasjóður greiðir
lögreglustjóraembættum kostnað þeirra vegna starfa athugunarmanna samkvæmt
tillögum Almannavarna ríkisins.
Lögreglustjóri skal árlega gera áætlun um stofn-, launa- og
rekstrarkostnað embættis síns vegna starfa athugunarmanns og leggja fyrir
Almannavarnir ríkisins. Laun athugunarmanns skulu greidd á sama hátt og laun
annarra starfsmanna viðkomandi embættis en ofanflóðasjóður greiðir embættinu
reglulega vegna rekstrarkostnaðar og launa athugunarmanns samkvæmt nánara
samkomulagi um greiðslufyrirkomulag.
11. gr.
Almannavarnir ríkisins skulu á grundvelli
kostnaðaráætlana lögreglustjóra, sbr. 10. gr., leggja árlega fyrir félagsmálaráðherra
til staðfestingar, áætlun um greiðslur úr ofanflóðasjóði vegna athugunarmanna,
ásamt uppgjöri vegna næsta árs á undan.
VI. KAFLI
Almenn
ákvæði.
12. gr.
Reglugerð þessi gildir, eftir því sem við
á, einnig um eftirlit með skriðuföllum.
13. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er í samráði við
Almannavarnir ríkisins, dómsmálaráðuneytið og umhverfisráðuneytið, með heimild
í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28, 4. júní 1985, með
síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytið,
6. október 1995.
Páll
Pétursson.
Anna G.
Björnsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð