Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

532/1998

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lögmæltar ökutryggingar, nr. 556 29. desember 1993. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um lögmæltar ökutækjatryggingar,

nr. 556 29. desember 1993.

1. gr.

            Í stað "Tryggingaeftirlitsins" í 3. mgr. 6. gr. komi: Vátryggingaeftirlitsins.

2. gr.

            Við 1. mgr. 11. gr. bætist: Við skráningu eigendaskipta að ökutæki skal einnig ganga úr skugga um að nýr eigandi (umráðamaður) hafi tryggt ökutækið lögmæltri vátryggingu.

3. gr.

            Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 4. mgr. 91. gr., 1. mgr. 94. gr. og 2. og 3. mgr. 96. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, öðlast gildi 15. september 1998.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 31. ágúst 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Ólafur W. Stefánsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica