Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

525/2007

REGLUGERÐ
um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna.

1. gr.
Þegar fluttar eru inn vörur, sem falla undir eftirtalin tollskrárnúmer í viðauka I við tollalög nr. 88/2005, skal greiða eftirlitsgjald í ríkissjóð og skal það notað til að standa undir kostnaði Landbúnaðarstofnunar við eftirlit með innflutningi plantna og plöntuafurða.

Greiða skal 2% eftirlitsgjald af vörum sem falla undir neðangreind tollskrárnúmer:

0601.1000
0602.3000
0602.9059
0603.1100
0603.1903
0604.9109
0601.2001
0602.4000
0602.9070
0603.1201
0603.1904
0601.2002
0602.9020
0602.9091
0603.1202
0603.1905
0701.1000
0601.2003
0602.9030
0602.9092
0603.1300
0603.1909
0701.9001
0601.2009
0602.9041
0602.9093
0603.1400
0701.9009
0602.9045
0602.9094
0603.1901
0604.1090
0602.1000
0602.9049
0602.9095
0603.1902
0604.9101
4401.1001
0602.2000
0602.9051
0602.9099
0604.9102

Greiða skal 1% eftirlitsgjald af vörum sem falla undir neðangreind tollskrárnúmer:

0702.0001
0704.9002
0705.1111
0705.2900
0707.0011
0709.6002
0702.0002
0704.9003
0705.1112
0707.0012
0709.6003
0704.9004
0705.1191
0706.1000
0707.0021
0709.6004
0704.1000
0704.9005
0705.1199
0706.9001
0707.0022
0704.2000
0704.9009
0705.1900
0706.9002
0704.9001
0705.2100
0706.9009



2. gr.
Eftirlitsgjald skv. 1. gr. skal lagt á tollverð vöru og skulu ákvæði V. kafla tollalaga nr. 88/2005 gilda eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem ekki er kveðið á um vöruflokkun, gjalddaga, innheimtu, lögvernd, viðurlög, refsingu og aðra framkvæmd innheimtu sérstaks eftirlitsgjalds skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði tollalaga nr. 88/2005 svo og reglugerða og annarra fyrirmæla sem sett eru samkvæmt þeim.


3. gr.
Tollstjórar annast innheimtu sérstaks eftirlitsgjalds samkvæmt reglugerð þessari og standa skil á þeim til ríkissjóðs eftir þeim fyrirmælum sem fjármálaráðuneytið setur um skil innflutningsgjalda, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 530/1975 um reikningsskil innheimtumanns ríkissjóðs.


4. gr.
Landbúnaðarráðherra sker úr ágreiningi um gjaldskyldu samkvæmt reglugerð þessari.


5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, sbr. 25. gr. laga nr. 87/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og um leið fellur úr gildi eldri reglugerð um sama efni nr. 110/1992.


Landbúnaðarráðuneytinu, 4. júní 2007.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Arnór Snæbjörnsson.

B_nr_525_2007.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt