Umhverfisráðuneyti

525/2006

Reglugerð um umhverfismerki. - Brottfallin

1. KAFLI

Markmið, gildissvið o.fl.

Markmið.

1. gr.

Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að því að ná markmiðum sjálfbærrar þróunar með því að efla hönnun, framleiðslu, markaðssetningu og notkun á þjónustu og vörum sem eru umhverfisvænar. Litið er til líftíma vörunnar í þessu sambandi. Umhverfis­merkingum er ætlað að auðvelda val neytenda og innkaupaaðila á umhverfis­vænni vöru og þjónustu. Jafnframt er framleiðendum og þjónustuaðilum gert auðveldara að framleiða og markaðssetja umhverfisvæna vöru og þjónustu.

Gildissvið.

2. gr.

Reglugerð þessi gildir um norræna umhverfismerkið, Svaninn og umhverfismerki Evrópu­bandalagsins, Blómið. Hún gildir um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfis­merkja fyrir vörur og þjónustu.

Reglugerðin gildir ekki um umhverfismerkingar fyrir matvæli, drykki eða lyf.

Umhverfismerki þessi eru valfrjáls og veitt til þeirra sem óska eftir því og uppfyllt hafa allar kröfur viðkomandi merkis.

Skilgreiningar.

3. gr.

Í reglugerðinni merkja orð og orðasambönd eftirfarandi:

Framleiðsluflokkur; (vöruflokkur) vörur eða þjónusta sem þjónar svipuðum tilgangi og má nota á sambærilegan hátt.

"Lífsferill vöru"; ferill vörunnar "frá vöggu til grafar", þ.e. hráefnisval, hönnun, framleiðsla, dreifing og notkun hennar sem og endurnýting og förgun.

Norræna umhverfismerkið, Svanurinn; sameiginlegt, opinbert norrænt umhverfismerki.

Umhverfismerki Evrópubandalagsins (EB), Blómið; sameiginlegt, opinbert umhverfis­merki EES-svæðisins.

Umhverfisvæn; vara sem veldur minna umhverfisálagi en önnur sambærileg vara á markaði og þar sem tekið hefur verið tillit til umhverfisþátta "frá vöggu til grafar".

Viðmiðunarregla; skjal sem inniheldur öll skilyrði og kröfur sem gerðar eru varðandi ákveðinn vöru- eða þjónustuflokk og liggja til grundvallar leyfi til að nota umhverfis­merki.

2. KAFLI

Stjórnsýsla.

Umhverfisstofnun.

4. gr.

Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með framkvæmd reglugerðar þessarar nema annað sé sérstaklega tekið fram í reglugerðinni.

Umhverfisstofnun sér um daglegan rekstur og alla umsýslu vegna umhverfismerkjanna Svansins og Blómsins, s.s. meðferð umsókna, veitingu leyfa og hefur jafnframt eftirlit með því að notkun umhverfismerkjanna sé í samræmi við reglugerð þessa og samningsskilmála hverju sinni.

Umhverfismerkisráð.

5. gr.

Umhverfismerkisráð er samstarfshópur fulltrúa helstu hagsmunaaðila um umhverfismerki og er Umhverfisstofnun til ráðgjafar um framkvæmd reglugerðar þessarar.

Í umhverfissmerkisráði eiga sæti fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Neytendasamtökunum, Samtökum iðnaðarins, Landvernd, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustu, Staðlaráði Íslands og Iðntæknistofnun Íslands. Fulltrúi Umhverfisstofnunar er formaður ráðsins og sér um að kalla ráðið saman.

Hlutverk umhverfismerkisráðs.

6. gr.

Hlutverk ráðsins er að marka stefnu fyrir umhverfismerkingar hér á landi, að höfðu samráði við umhverfisráðuneyti og taka ákvarðanir um viðmiðunarreglur.

Ennfremur er það hlutverk ráðsins að gefa umsagnir vegna kærumála, annast fræðslu og upplýsingastarfsemi, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem samræmast hlutverki ráðsins.

3. KAFLI

Norræna umhverfismerkið.

Útlit merkisins.

7. gr.

Norræna umhverfismerkið, Svanurinn, er mynd af hvítum svani á grænum fleti (litur: pms 347). Yfir merkinu stendur skrifað "UMHVERFISMERKI". Vörur sem fengið hafa leyfi til að bera merkið skulu auðkenndar með leyfisnúmeri, sem eru sex tölur sem verða að sjást greinilega á viðkomandi vöru. Leyfisnúmerið skal vera undir umhverfismerkinu.

Heimilt er að setja ritaða texta, allt að þrjár línur undir umhverfismerkið, sbr. viðmiðunarreglur Svansins fyrir viðkomandi vöruflokk. Skýringarmynd er birt í fylgiskjali 1 með reglugerð þessari.

Meginreglur um veitingu og notkun.

8. gr.

Umhverfismerkið má veita þeirri vörutegund eða þjónustu sem uppfyllir viðmiðunarreglur fyrir viðkomandi vöruflokka eða þjónustu.

Þeim sem veitt hefur verið leyfi til að auðkenna vörur með umhverfismerkinu er heimilt að nota það í auglýsingar- og kynningarskyni.

Viðmiðunarreglur.

9. gr.

Samræmdar viðmiðunarreglur gilda fyrir tiltekna vöruflokka eða tiltekna þjónustu í þeim löndum sem veita norræna umhverfismerkið. Gildistími viðmiðunarreglna skal ekki vera lengri en þrjú ár, sbr. þó ákvæði 11. gr. Einu ári áður en gildistími viðmiðunarreglu rennur út skal Umhverfisstofnun tilkynna leyfishafa um væntanlegar breytingar og gildistöku nýrrar viðmiðunarreglu.

Leyfishafi skal sækja um endurnýjun á leyfi hyggist hann halda áfram að nota umhverfismerkið eftir að ný og endurskoðuð viðmiðunarregla tekur gildi. Fara skal með umsókn um endurnýjun sem nýja umsókn og greiða gjöld í samræmi við það.

Upplýsingar um viðmiðunarreglur fyrir vöruflokka og þjónustu sem samþykktir hafa verið liggja frammi hjá Umhverfisstofnun og á heimasíðu hennar.

Veiting merkisins.

10. gr.

Umhverfisstofnun veitir leyfi til að nota norræna umhverfismerkið hér á landi í samræmi við notkunarskilmála, sbr. 15. gr.

Leyfi til að nota umhverfismerkið skal veitt í tiltekinn tíma og má hann ekki vera lengri en gildistími einstakra viðmiðunarreglna sbr. 9. gr., sbr. þó ákvæði 11. gr.

Framlenging á gildistíma viðmiðunarreglu.

11. gr.

Hafi gildistími tiltekinnar viðmiðunarreglu verið framlengdur framlengist einnig gildistími leyfa sem hafa verið veitt og byggjast á sömu útgáfu af viðmiðunarreglu.

Umsókn.

12. gr.

Framleiðendur, innflytjendur eða umboðsaðilar vöru eða þjónustu geta sótt um leyfi til að nota umhverfismerkið hér á landi. Umsókn um heimild til þess að nota norræna umhverfismerkið skal senda til Umhverfisstofnunar á sérstökum eyðublöðum.

Umsækjendum ber að greiða umsóknargjald þegar umsókn er lögð inn í samræmi við gjaldskrá sem umhverfisráðherra setur.

Upplýsingar í umsókn.

13. gr.

Í umsókn skulu a.m.k. koma fram upplýsingar um eftirfarandi:

  1. nafn og heimilisfang umsækjanda,
  2. vöruflokk eða þjónustu sem sótt er um leyfi fyrir,
  3. heiti vöru eða nánari skilgreining ef um þjónustu er að ræða,
  4. hvernig vörutegund eða þjónusta uppfyllir þær kröfur sem fram koma í viðkomandi viðmiðunarreglu,
  5. áætlaða ársveltu viðkomandi vöruflokks eða þjónustu,
  6. upplýsingar um fyrri umsókn eða umsóknir.

Umsóknin skal uppfylla markmið reglugerðar þessarar og skilyrði viðmiðunarreglu fyrir viðkomandi vöruflokk eða þjónustu.

Nú reynist umsókn um umhverfismerki ófullnægjandi og skal þá vísa umsókninni frá skriflega. Umhverfisstofnun skal veita upplýsingar og leiðbeiningar um það sem betur má fara.

Allur kostnaður við gerð umsóknar (mælingar, prófanir o.þ.h.) greiðist af umsækjanda.

Umsóknargjald endurgreiðist ekki þótt umsókn sé hafnað nema 3. mgr. eigi við.

Meðferð umsóknar.

14. gr.

Umhverfisstofnun fjallar um umsóknir og tekur ákvörðun um veitingu umhverfismerkis eigi síðar en þremur mánuðum eftir móttöku umsóknar. Leita skal umsagnar umhverfis­merkisráðs áður en ákvörðun er tekin um veitingu umhverfismerkisins.

Reynist ekki auðið að taka ákvörðun um veitingu umhverfismerkis innan þess frests sem gefinn er skv. 1. mgr. skal gera umsækjanda grein fyrir því bréflega og tilgreina ástæður fyrir seinkuninni.

Synji Umhverfisstofnun umsókn um leyfi til að nota umhverfismerki á tiltekna vörutegund eða þjónustu skal tilkynna umsækjanda það skriflega og tilgreina ástæður synjunar.

Notkunarskilmálar.

15. gr.

Þeir einir sem hafa fengið útgefið leyfi hjá Umhverfisstofnun og undirritað notkunar­skilmála mega nota norræna umhverfis­merkið, Svaninn, á Íslandi, sbr. þó ákvæði 16. gr. um skrásetningu á leyfum sem eru útgefin í öðrum löndum sem taka þátt í samstarfi um norræna umhverfismerkið Svaninn.

Útgefið leyfi er uppsegjanlegt með þriggja mánaða fyrirvara og geta báðir aðilar sagt því upp. Uppsögnin skal vera skrifleg og móttaka staðfest eða send í ábyrgðarpósti. Uppsögn Umhverfisstofnun á samningi milli aðila skal vera rökstudd.

Brot á notkunarskilmálum getur orðið tilefni fyrirvaralausrar uppsagnar leyfis af hálfu Umhverfisstofnunar.

Gagnkvæm viðurkenning.

16. gr.

Veiting norræna umhverfismerkisins, Svansins, í einu landi gildir í þeim löndum sem taka þátt í veitingu þess. Til þess að mega nota umhverfismerkið á vöruflokk eða þjónustu í öðru landi en Íslandi verður að skrásetja það sérstaklega, sbr. 17. gr. reglugerðarinnar.

Skrásetning.

17. gr.

Umhverfisstofnun skrásetur leyfi fyrir vörur eða þjónustu sem fengið hafa norræna umhverfismerkið í öðrum löndum. Notkun umhverfismerkis er óheimil fyrr en tilkynning hefur verið send stofnuninni.

Beiðni um skrásetningu skulu fylgja upplýsingar um nafn framleiðanda, umboðsaðila og væntanlega sölu á þeirri vöru eða þeim vörum sem fengið hafa leyfi til að nota umhverfismerkið. Einnig skal fylgja beiðni um skrásetningu afrit af upphaflegu leyfi fyrir notkun norræna umhverfismerkisins sem útgefið hefur verið í einhverju hinna Norðurlandanna.

Beiðni um skrásetningu hér á landi skal afgreiða innan tveggja vikna frá móttöku. Þó er heimilt að lengja þennan frest í fjórar vikur ef afla þarf viðbótar gagna t.d. frá leyfisveitanda.

4. KAFLI

Umhverfismerki Evrópubandalagsins, Blómið.

18. gr.

Með vísan til tl. 2a og 2ac í I. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið (EES-samningsins) taka með reglugerð þessari gildi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1980/2000 um endurskoðað kerfi um veitingu umhverfismerkis bandalagsins. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 2. Í reglugerðinni gilda tilvísanir til ESB einnig fyrir EES-ríkin.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2000/729/EB varðandi staðlaðan samning um notkunarskilmála umhverfismerkis bandalagsins, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 31, 27. júní 2002, bls. 132-135.

Með vísan til meginmáls samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í tl. 2 í I. kafla XX. viðauka, ásamt viðbótum, breytingum og bókunum, auk annarra ákvæða hans, er hér með auglýst gildistaka ákvarðana um vistfræðilegar viðmiðanir er veita á umhverfismerki bandalagsins fyrir tiltekna framleiðsluflokka og þjónustu og sem liggja frammi hjá Umhverfisstofnun og finna má á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is.

Umhverfisstofnun er heimilt að veita leyfi til að nota umhverfismerki Evrópubandalagsins (EB), Blómið, vegna vöru og þjónustu sem uppfyllir viðmiðunarreglur sem settar hafa verið um notkun merkisins. Umhverfisstofnun fer með umsýslu, framkvæmd og eftirlit framangreindra gerða samkvæmt ákvæði þessu.

5. KAFLI

Fræðslu- og kynningarstarfsemi.

Almennar upplýsingar.

19. gr.

Umhverfisstofnun ber að upplýsa neytendur og fyrirtæki um eftirfarandi:

  1. tilganginn með veitingu umhverfismerkja,
  2. hvaða framleiðsluflokkar hafa verið valdir,
  3. viðmiðunarreglur fyrir hvern framleiðsluflokk,
  4. hvernig sækja á um umhverfismerki.

Að öðru leyti annast umhverfismerkisráð fræðslu- og kynningarstarfsemi.

Umhverfisstofnun birtir upplýsingar, sbr. 1. mgr., á heimasíðu stofnunarinnar.

6. KAFLI

Ýmis ákvæði.

Eftirlit.

20. gr.

Umhverfisstofnun hefur eftirlit með því að farið sé að ákvæðum reglugerðar þessarar um notkun umhverfismerkja, s.s. notkunarskilmálum, og að útlit umhverfismerkja sé í samræmi við viðauka reglugerðarinnar.

Aðgangur að upplýsingum.

21. gr.

Um aðgang að upplýsingum gilda lög nr. 23/2006, um upplýsingarétt um umhverfismál, upplýsingalög nr. 50/1996 og ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir.

Þagnarskylda.

22. gr.

Þeir sem starfa samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar eru bundnir þagnarskyldu um atriði er varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama gildir um atriði sem þeir fá vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

Greiðsla kostnaðar.

23. gr.

Umhverfisstofnun innheimtir umsóknargjald fyrir vinnslu umsókna og skrásetningu hér á landi samkvæmt reglugerð þessari. Gjaldið skal svara til kostnaðarins við afgreiðslu umsóknar, útgáfu leyfis og skrásetningu hér á landi. Umsækjendur skulu standa undir kostnaði við nauðsynlegar prófanir og sannprófanir. Einnig innheimtir Umhverfisstofnun árgjald fyrir notkun umhverfismerkjanna.

Umhverfisstofnun innheimtir kostnað vegna eftirlits með því að ákvæði reglugerðar þessarar sé fylgt.

Ráðherra setur gjaldskrá, sbr. 1. mgr., að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og umsögn umhverfismerkisráðs, og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Gjöld samkvæmt ákvæði þessu má innheimta með fjárnámi.

Ágreiningur um framkvæmd.

24. gr.

Rísi ágreiningur um framkvæmd reglugerðarinnar eða um ákvarðanir Umhverfisstofnunar samkvæmt henni er heimilt að vísa málinu til sérstakrar úrskurðarnefndar, sbr. 31. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Valdsvið, þvingunarúrræði og viðurlög.

25. gr.

Ákvæði VI. og VIII. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, gilda um valdsvið, þvingunarúrræði og viðurlög.

Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skulu sæta meðferð opinberra mála.

7. KAFLI

Lagastoð, gildistaka o.fl.

26. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig er hliðsjón höfð af ákvæðum tl. 2 í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1980/2000 um endurskoðað kerfi um veitingu umhverfismerkis bandalagsins og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2000/729/EB varðandi staðlaðan samning um notkunarskilmála umhverfismerkis bandalagsins.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 377/1994 um umhverfismál á Evrópska efnahagssvæðinu og 2. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 626/1997 um gildistöku EES-ákvarðana er varða umhverfismerki bandalagsins.

Umhverfisráðuneytinu, 26. júní 2006

F. h. r.

Ingimar Sigurðsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica