REGLUGERÐ
fyrir talnagetraunina
Kínó.
1.
gr.
Leyfishafi.
1.1 Leyfishafi er Íslensk
getspá sem starfar skv. 1. gr. laga um talnagetraunir nr. 26/
1986.
2.
gr.
Tegund
talnagetraunar.
2.1 Íslensk getspá
starfrækir talnagetraun undir heitinu Kínó. Um getraunastarfsemina gilda
eftirfarandi reglur:
3.
gr.
Leikspjöld, útfylling þeirra
og greiðsla.
3.1 Íslensk getspá gefur út
og dreifir leikspjöldum til þátttöku í talnagetrauninni. Á hverju leikspjaldi
eru reitir sem hér segir:
3.1.1 Fimm reitir til að
merkja við hve margar krónur þátttakandi greiðir fyrir leikinn, kr. 50,-, kr.
100,-, kr. 150,-, kr. 200,- eða kr. 250,-. Aðeins ein upphæðanna
gildir.
3.1.2 Reitir 1, 2, 3, 4, 5,
6 þar sem þátttakandi merkir við hve margar tölur hann
velur.
3.1.3 Reitir með tölunum
1-30. Einnig er reitur merktur sjálfval sem merkja skal við ef sölukassinn á að
velja töluna eða tölurnar, annars merkir þátttakandi í reitina 1-30, álit eftir
því hve margar tölur harm vill nota eða 1-6 tölur, sbr. 3. gr.
t1.1.2.
3.1.4 Reitir fyrir fjölda
útdráttá, 2, 4, 6, 10, 12 eða 18. Í þessa rein merkir þátttakandi við þann
fjölda útdrátta sem hann óskar að taka þátt í. Ef ekki er merkt við fjölda
útdrátta þá gildir aðeins næsti útdráttur.
Á sölustóðum skulu liggja
frammi leiðbeiningar um þátttöku í talnagetrauninni. Þar skal og vera hvatning
til þátttakanda að rita nafn sitt á þátttökukvittun í
öryggisskyni.
3.2 Leikur í
talnagetrauninni fer að jafnaði fram sex sinnum í viku samkvæmt nánari ákvörðun
stjórnar Íslenskrar getspár.
3.3 Leikurinn felst í því að
þátttakandi merkir með blýanti eða dökkum penna (ekki rauðum lit) í rein
leikspjalds sem lýst er í 3. gr. tl. 3.1. Geri þátttakandi villu skal harm fá
sér nýtt leikspjald.
3.4 Að loknu vali á tölum
skv. 3. gr. tl. 3.3 er leikspjaldið afhent söluaðila, sem rennir því í sölukassa
sem tengdur er tölvukerfi Íslenskrar getspár. Þátttakandi getur einnig tilkynnt
þátttöku sína með því að skýra söluaðila munnlega frá vali sínu á tölum og sér
þá söluaðili um skráningu þeirra talna í tölvukerfi Íslenskrar getspár. Þá getur
þátttakandi óskað eftir því að tölur bans verði valdar af handahófi í
sölukassa.
3.5 Söluaðili skal síðan
afhenda þátttakanda þátttökukvittun ásamt viðkomandi leikspjaldi gegn greiðslu.
Á kvittun skal koma fram hvaða tala eða tölur voru valdar. Þá skal koma fram
heildartala þeirrar fjárhæðar, sem greidd hefur verið, dagsetning útdráttar eða
gildistími, ef tekið er þátt í fleiri en einni leikviku, og öryggisnúmer, sem
auðkennir viðkomandi afgreiðslu.
Þátttakandi skal ganga úr
skugga um að samræmi sé milli kvittunar og merkja á leikspjaldi, eða að hún sé í
samræmi við munnleg fyrirmæli hans, haft harm gefið tölur sínar upp munnlega. Þá
ber þátttakanda að ganga úr skugga um að þátttökukvittun greini útdráttardag (a)
eða gildistíma sem þátttaka er bundin við.
3.6 Leikspjald fyrir
Kínó gildir aldrei sem kvittun, en þátttakandi getur notað það aftur eða látið
það gilda í 2, 4, 6, 10, 12 eða 18 útdráttum að eigin vali, ef harm óskar eftir
óbreyttu talnavali, með því að strika lóðrétt yfir viðkomandi reiti á
leikspjaldi um fjölda útdrátta.
3.7 Þátttaka í
talnagetrauninni fer fram í samræmi við það er þátttökukvittun greinir. Telji
þátttakandi að þátttökukvittun sé ekki í samræmi við leikspjald eða þær munnlegu
upplýsingar, er harm gaf, skal harm bera fram kvörtun sína þegar í stað. Að
öðrum kosti verður litið svo á að harm haft með móttöku þátttökukvittunar
samþykkt þátttöku í samræmi við þær töltu, er kvittunin greinir. Þátttakandi ber
einn ábyrgð á þátttökukvittun sinni og á enga kröfu til vinnings nema gegn
framvísun hennar. Íslensk getspá ber ekki ábyrgð á villu í prentun kvittunar og
ábyrgð félagsins á rangri kvittun er takmörkuð við ógildingarverðmæti hennar
samkvæmt 3. gr. tl. 3.8. Félagið ber ekki ábyrgð á stolnum eða glötuðum
kvittunum.
3.8 Þátttökukvittun
má ógilda með því að skila henni aftur til söluaðila, enda sé það gert samdægurs
og sala fór fram og það tímanlega að unnt sé að ljúka ógildingu á innfærslu
hennar í tölvukerfi Íslenskrar getspár, áður en útdráttur fer fram. Sé
þátttökukvittun ógild, á greiðandi rétt á endurgreiðslu á sömu fjárhæð og harm
greiddi.
3.9 Þátttakandi ákveður
hvaða upphæð harm greiðir fyrir leikinn, lágmarksupphæð er kr. 50,- og
hámarksupphæð er kr. 250, sbr. 3. gr. tl. 3. I .1. Aðeins er unnt að gerast
þátttakandi hjá söluaðilum Íslenskrar getspár, en sölukerfið er að jafnaði
opið frá kl. 9:00 til 23:30 alla daga nema sunnudaga, en þá er
lokað.
3.10 Öll vinnsla í
tölvukerfi Íslenskrar getspár hvað varðar Kínó skal falla niður frá því 1 S
mínútum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er lokið og
vinningstölur hafa verið birtar í sjónvarpi.
4.
gr.
Útdráttur
vinningstalna.
4.1 Útdráttur 7
vinningstalna í Kínó fer fram á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum, föstudögum og laugardögum, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar
Íslenskrar getspár.
Útdráttur
vinningstalna í Kínói skal fara fram með eftirfarandi
hætti:
4.1.1 Útdrátturinn fer fram
í tölvu samkvæmt útdráttarforriti sem skal gert samkvæmt viðurkenndum aðferðum
og sannprófað af sérfræðingum sem dómsmálaráðuneytið
tilnefnir.
Forritið skal geymt á CD
diski sem einungis skal nota í þessum tilgangi og harm skal geyma með öruggum
hætti undir innsigli milli útdrátta.
Starfsmaður Íslenskrar
getspár, undir eftirliti eftirlitsmanns frá endurskoðunarskrifstofu, sbr. 9. gr.
tl. 9.3, skal ræsa forritið og framkvæma með því útdrátt.
4.1.2 Þegar útdráttur í
tölvunni hefur farið fram birtast tölurnar á skjá
tölvunnar
ásamt dagsetningu og
tímasetningu og sömu upplýsingar prentast út á tvo
prentara.
Útdráttur telst gildur þegar
framangreind skilyrði eru uppfyllt.
4.1.3 Eftirlitsmaður frá
endurskoðunarskrifstofu, sbr. 9. gr. tl. 9.3, skal yfirfara og staðfesta að
útdráttur hafi farið fram með réttum hætti, að vinningstölum á skjá og prentara
beri saman, að réttar vinningstölur hail birst í sjónvarpsútsendingu og að
réttar vinningstölur hafi verið skráðar í sölukerfi Íslenskrar getspár.
Niðurstöður af þessum athugunum skulu færðar í sérstaka
bók.
4.1.4 Ef útdráttur fer ekki
fram með þeim hætti sem lýst er í 4. gr. tl. 4.1.1 skal dregið úr þar til gerðum
stokki sem prófaður er af löggildingarstofu og samþykktur af eftirlitsmanni. Í
stokknum skulu vera 30 númeraðar kúlur með tölunum 1-30 að báðum meðtöldum og
skal velja sjö kúlur.
5.
gr.
Vinningar.
5.1 Þeir sem hafa
þátttökukvittun með tölum þeim, sem valdar hafa verið, annað hvort altar eða
hluta þeirra í sama leik (dálki), fá vinning í samræmi við ákvæði 5. gr. tl.
5.3.
5.2 Þátttakendur
hljóta eingöngu vinning í samræmi við hæsta fjölda á hverju leikspjaldi, þ.e. sá
sem hlýtur vinning fyrir 6 réttar tölur fær ekki einnig vinning fyrir S réttar
tölur o.s.frv.
5.3
Vinningsfjárhæðin ræðst af fjölda réttra talna samkvæmt útdrætti og þeirri
fjárhæð sem greidd er fyrir þátttöku samkvæmt eftirfarandi
töflu.