Utanríkisráðuneyti

505/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarus nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarus nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum:

  1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1142 frá 13. júlí 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 1.6.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1335 frá 31. júlí 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 1.7.
  1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1957 frá 29. október 2015 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 1.8.
  1.9. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/280 frá 25. febrúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 1.9.
  2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1133 frá 13. júlí 2015 um framkvæmd reglu­­gerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 2.11.
  2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1326 frá 31. júlí 2015 um framkvæmd reglu­­gerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 2.12.
  2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1948 frá 29. október 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 2.13.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1949 frá 29. október 2015 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a í reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 2.14.
  2.15 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/276 frá 25. febrúar 2016 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a í reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgi­skjal 2.15.
  2.16 Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/277 frá 25. febrúar 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 2.16.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica