|
|
505/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 583/2000 um innflutning,
ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.
1. gr. Í stað orðsins „Náttúruverndar ríkisins“ í 1. mgr. 7. gr. og sama orðs í 10. gr. og 12. gr. kemur í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfisstofnun.
2. gr. Nýr viðauki bætist við reglugerðina, svohljóðandi:
VIÐAUKI 2
Listi A yfir útlendar plöntutegundir sem óheimilt er að flytja til landsins.
- Azolla filiculoides.
- Bunias orientalis – Rússakál.
- Elodea canadensis – Vatnapest.
- Fallopia japonica.
- Fallopia sachalinensis.
- Galinsoga quadriradiata.
- Heracleum persicum – Húnakló.
- Heracleum mantegazzianum – Bjarnarkló.
- Heracleum sp.
- Impatiens parviflora – Snuddulísa.
- Petasites hybridus – Hrossafífill.
- Senecio inaequidens.
- Solidago canadensis – Kanadagullhrís.
- Solidago gigantea.
- Spartina anglica.
3. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 41. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 5. maí 2011.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson. Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Stofnreglugerð: 583/2000 - Reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.
|