REGLUGERÐ
um breytingu á
reglugerð um neytendalán,
nr. 377 3.
september 1993.
1.gr.
Við reglugerðina bætist ný grein sem verður 6. gr.
Tölusetning annarra greina breytist samkvæmt því. Greinin orðast svo:
Þegar heildarlánveitingar seljanda til neytenda í formi
viðskiptabréfa hafa ekki numið hærri fjárhæð en 10.000.000 kr. Síðustu tólf
mánuði fyrir töku tryggingar er seljanda heimilt að miða tryggingarfjárhæðina
við 2.500.000 kr. Hyggist seljandi nýta sér þessa heimild skal hann afhenda
tryggingarsala yfirlýsingu um heildarlánveitingar í formi viðskiptabréfa frá
löggiltum endurskoðanda, banka, sparisjóði eða annarri fjármálastofnun sem
kaupir af honum viðskiptabréf. Yfirlýsingin skal fest við tryggingarskírteinið
og varðveitt ásamt því.
Nú er yfirlýsing skv. 1. mgr. gefin út af banka, sparisjóði
eða annarri fjármálastofnun og skal þá koma fram á tryggingarskírteininu að
tryggingin bæti einungis vanefndakröfur vegna viðskipta að baki viðskiptabréfum
sem seld eru þeirri fjármálastofnun sem yfirlýsinguna gaf. Hið sama gildir ef
yfirlýsingar vegna heildar lánveitinga eins seljanda eru gefna út af fleiri en
einum banka, sparisjóði eða annarri fjármálastofnun.
Seljendur trygginga skulu tilkynna Samkeppnisstofnun um þá
aðila sem kaupa tryggingu skv. 1. mgr.
Fari heildarlánveitingar seljanda til neytenda í formi
viðskiptabréfa yfir 10.000.000 kr. Á tryggingartímabilinu og skal hann þá þegar
kapa viðbótartryggingu þannig að tryggingarfjárhæðin hækki í 5.000.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 18. gr.
laga nr. 30/1993, um neytendalán, og öðlast hún þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytið,
3. desember 1993.
F.h.r.
Þorkell Helgason.
Finnur
Sveinbjörnsson.
Word útgáfa af reglugerð