Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

497/2007

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð, nr. 528/2005,
um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands.

1. gr.
Við 5. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Heimilt er leiðsögumönnum með hreindýraveiðum við þau störf að sækja fellda bráð á léttum vélknúnum ökutækjum að lágmarki með sex hjólum, enda sé að mati leiðsögumanna ekki talin hætta á náttúruspjöllum. Gildir þetta þó eingöngu þar sem dýr hafa verið felld fjarri vegum enda talið nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að afurðir dýranna skemmist. Heimildin nær ekki til sjálfrar leiðsagnarinnar. Hyggist leiðsögumaður sækja fellda bráð með þessum hætti ber honum að tilkynna Umhverfisstofnun um það áður en bráð er sótt. Umhverfisstofnun gefur út leiðbeinandi reglur um framkvæmd þessa ákvæðis að höfðu samráði við Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 17. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999 og öðlast þegar gildi.


Umhverfisráðuneytinu, 21. maí 2007.

Jónína Bjartmarz.
Sigrún Ágústsdóttir.

B_nr_497_2007.doc

Stofnreglugerð:
528/2005 - Reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt