Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. júní 2021

493/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Egyptaland nr. 908/2015.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði töluliðar 1.2 í 2. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

1.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/411 frá 18. mars 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/172/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Egyptalandi, fylgiskjal 1.2.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.