Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

489/2010

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 136/2004
um reglur um heilbrigðiseftirlit dýralæknis á landamærastöðvum
með afurðum sem eru fluttar inn frá þriðju löndum.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
2. gr.
Fylgiskjal.
Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.


3. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um þvingunarúrræði og brot gegn reglugerð þessari er varða viðurlögum fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim eða ákvæðum laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir.


4. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun annast eftirlit samkvæmt reglugerð þessari.


5. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 17. gr. a laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 31. gr. laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.


6. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka efnisákvæði þessarar reglugerðar ekki til kjöts, mjólkur, eggja og hrárra afurða úr þessum matvælategundum fyrr en 1. nóvember 2011.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. maí 2010.

Jón Bjarnason.
B_nr_489_2010_an_fylgiskjals.docx

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt