|
|
481/2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um viðarumbúðir vara við útflutning
nr. 343/2004, sbr. reglugerð nr. 264/2005.
1. gr. Í stað orðanna „plöntueftirlits Landbúnaðarháskóla Íslands“ í 1. mgr. 3. gr., og 1. og 3. mgr. 6. gr. kemur í viðeigandi falli: Landbúnaðarstofnun.
2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. og 3. gr. laga nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytinu, 12. maí 2006.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson. Arnór Snæbjörnsson. 
Stofnreglugerð: 343/2004 - Reglugerð um viðarumbúðir vara við útflutning.
|