|
|
475/2001
felld brott með rg. nr. 711/2009
REGLUGERÐ
um skipun starfsgreinaráða.
1. gr. Menntamálaráðherra skipar til fjögurra ára í senn starfsgreinaráð fyrir starfsgreinaflokka eða starfsgreinar. Í starfsgreinaráði skulu eiga sæti fulltrúar tilnefndir af samtökum atvinnurekenda og launþega í viðkomandi starfsgreinum og einn fulltrúi menntamálaráðherra. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Við skipun fulltrúa í starfsgreinaráð skal gætt jafnræðis milli fulltrúa atvinnurekenda og launþega.
2. gr. Starfsgreinaráð eru skipuð í eftirtöldum starfsgreinaflokkum:
 | a. | björgunar-, öryggis- og löggæslugreinum, |
 | b. | bygginga- og mannvirkjagreinum, |
 | c. | farartækja- og flutningsgreinum, |
 | d. | heilbrigðis- og félagsgreinum, |
 | e. | hönnunar- og handverksgreinum, |
 | f. | matvæla- og veitingagreinum, |
 | g. | málm-, véltækni- og framleiðslugreinum, |
 | h. | náttúrunýtingu, |
 | i. | rafiðngreinum, |
 | j. | sjávarútvegs- og siglingagreinum, |
 | k. | uppeldis- og tómstundagreinum, |
 | l. | upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, |
 | m. | verslunar-, skrifstofu- og fjármálagreinum, |
 | n. | snyrtigreinum. |
3. gr. Í starfsgreinaráðum sitja að jafnaði 7 fulltrúar, 6 tilnefndir af samtökum atvinnurekenda og launafólks í viðkomandi greinum svo sem kveðið er á um í 5. gr. og einn tilnefndur af menntamálaráðherra. Varamenn skulu tilnefndir með sama hætti. Ráðherra getur skipað fleiri eða færri einstaklinga í starfsgreinaráð ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Formaður skal kjörinn úr hópi fulltrúa til tveggja ára í senn.
4. gr. Við tilnefningu fulltrúa í starfsgreinaráð skal við það miðað að þar komi saman einstaklingar er hafa þekkingu á þeim störfum sem falla innan viðkomandi starfsgreinaflokks, hafa reynslu af fræðslustarfsemi á sínu sviði og þekkja þá stefnu sem mótuð hefur verið um þróun þess starfsnáms er undir ráðið heyrir.
5. gr. Fulltrúar fyrir samtök vinnumarkaðarins í starfsgreinaráðum eru tilnefndir sem hér segir:
Starfsgreinaráð björgunar-, öryggis- og löggæslugreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Sjómannasambandi Íslands og Starfsgreinasambandi Íslands og 2 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins. Auk þeirra tilnefnir dóms- og kirkjumálaráðuneytið 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Múrarasambandi Íslands, Sveinafélagi pípulagningamanna og Veggfóðrarafélagi Reykjavíkur og 4 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð farartækja- og flutningsgreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og 2 fulltrúar tilnefndir af Bílgreinasambandinu.
Starfsgreinaráð heilbrigðis- og félagsgreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands og 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Auk þeirra tilnefnir félagsmálaráðuneytið 1 fulltrúa og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð hönnunar- og handverksgreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Form Ísland og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð matvæla- og veitingagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Matvís, 1 fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Landssambandi ísl. verslunarmanna og Starfsgreinasambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð málm-, véltækni- og framleiðslugreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð í náttúrunýtingu: 1 fulltrúi tilnefndur af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Félagi leiðsögumanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Landssambandi íslenskra verslunarmanna, 2 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins og 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Starfsgreinaráð rafiðngreina: 3 fulltrúar tilnefndir sameiginlega af Rafiðnaðarsambandi Íslands og Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði.
Starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandinu, 1 fulltrúi tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Vélstjórafélagi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum kaupskipaútgerða og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð uppeldis- og tómstundagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins. Að auki tilnefnir menntamálaráðherra 1 fulltrúa.
Starfsgreinaráð upplýsinga- og fjölmiðlagreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Blaðamannafélagi Íslands, 1 fulltrúi tilnefndur af Félagi bókagerðarmanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Félagi grafískra teiknara og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð fjármála- og verslunargreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Landssamband íslenskra verslunarmanna, 1 fulltrúi tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra bankamanna og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.
Starfsgreinaráð snyrtigreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Samiðn, 2 fulltrúar tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga, þar af 1 meistari og 1 sveinn og 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
6. gr. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 28. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 18. júní 2001.
Björn Bjarnason.
Guðríður Sigurðardóttir.
|